Moyes á von á hörkuslag eins og venjulega Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2010 12:30 David Moyes, stjóri Everton. Nordic Photos / Getty Images
David Moyes, stjóri Everton, reiknar ekki með öðru en hörkuslag eins og venjulega þegar hans menn mæta grönnum sínum í Liverpool. Það er hins vegar afar sjaldgæft að um botnslag sé að ræða þegar þessi tvö lið mætast eins og er tilfellið nú. Everton er í sautjánda sæti deildarinnar og Liverpool í átjánda sem er fallsæti. „Það er alltaf mikið tæklingar, góðar og vondar, þegar lið mætast í grannaslag. Ég á ekki von á að það muni eitthvað breytast nú. Kannski af því að tæklingar hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu," sagði Moyes. „Ástæðan fyrir því að fólk hefur svo mikinn áhuga á grannaslögum eins og þessum er að þetta eru miklir baráttuleikir. Það vill þó enginn sjá þessar slæmu tæklingar en stuðningsmenn vilja þó sjá að leikmenn gefi sig allan í leikinn." „Það er semsagt þannig að við viljum losna við slæmu meiðslin en ekki tæklingarnar. Sjálfur hefði ég engan áhuga á því að þjálfa lið sem tæklaði aldrei." Dæmi um meiðsli leikmanna í leikjum Everton og Liverpool eru nærtæk. Í leik liðanna í febrúar síðastliðnum meiddist Marouane Fellaini á ökkla eftir að hafa lent í tæklingu Kyrgiakos. Sá fékk að líta rauða spjaldið í leiknum, rétt eins og Everton-maðurinn Steven Pienaar. Hvorki Fellaini né Pienaar verða með þegar liðin mætast í hádeginu á morgun vegna meiðsla. Hið sama má segja um Phil Jagielka. Liverpool hefur verið afar mikið í fréttunum síðustu daga vegna kaupa NESV á félaginu. Moyes sagði að það ætti ekki að skipta neinu máli í leiknum. „Af hverju ættu knattspyrnumenn að hafa áhyggjur af svona löguðu. Þeir vilja bara spila fótbolta. Þetta eru fagmenn og það verða ellefu leikmenn í hvoru liði þegar leikurinn hefst á morgun."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira