Íslenski boltinn

Valur vann Fjölni örugglega

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals.
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals.

Valsmenn fengu sín fyrstu stig í Lengjubikarnum þegar þeir unnu 1. deildarlið Fjölnis örugglega 3-0 í Egilshöll.

Haukur Páll Sigurðsson sem gekk til liðs við Val frá Þrótti í vetur kom liðinu yfir á 41. mínútu. Valur skoraði síðan tvö mörk í seinni hálfleik.

Fyrst var það Þórir Guðjónsson og svo Rúnar Már Sigurjónsson. Sá síðarnefndi er nýr í Valsliðinu, kom frá HK í vetur.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×