Ekki verra ef klofningur Sjálfstæðisflokks fengist í kaupbæti 7. desember 2010 19:03
Var það persónulegur metnaður Gunnars Thoroddsens fyrst og fremst sem rak hann til hinnar umdeildu ríkisstjórnarmyndunar árið 1980 eða var hann að bjarga heiðri Alþingis? Um þetta ræddu fyrrverandi stjórnmálaforingjar á fundi í Háskóla Íslands í dag. Tilefni fundarins var útkoma ævisögu Gunnars, eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing. Þótt stjórnmálaferill Gunnars spanni nærri hálfa öld mun hans lengst verða minnst fyrir að hafa, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokks, myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi fyrir 30 árum. Margir sjálfstæðismenn töldu hann svikara. Einn ráðherra þeirrar stjórnar, Svavar Gestsson, var spurður í dag hvort meginmarkmið Alþýðubandalagsmanna með stjórnarmynduninni hafi verið að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Nei. Víðsfjarri, svaraði Svavar. "En hins vegar getur vel verið að einhverjum hjá okkur hafi ekki þótt það neitt verra að það fylgdi með í kaupbæti," bætti hann svo við, og vakti hlátur fundargesta. Heyra mátti á ævisöguritararanum Guðna að persónulegur metnaður Gunnars hafi ráðið miklu um stjórnarmyndunina en það mat byggir hann á dagbókarfærslum Gunnars. Þessu er Friðrik Sophusson sammála en telur fleira hafa ráðið ákvörðun Gunnars. Hann hafi ekki viljað að forseti Íslands myndaði utanþingsstjórn. "Þannig að það var líka metnaður fyrir hönd Alþingis," sagði Friðrik. Svavar segir að á þessum tíma hafi menn verið búnir að reyna mjög lengi að mynda ríkisstjórn, meðal annars þjóðsstjórn, en án árangurs, og utanþingsstjórn hefði verið næsta skref. Hún hefði verið niðurlægjandi fyrir þingræðið, að mati margra þá. Gunnar Thoroddsen var maður mikilla kosta en einnig galla, segir Guðni. Hann hafi unnið mikla sigra en einnig ósigra. Hann hafi verið hæfileikaríkur en einnig breyskur. "Og framar öllu: Maður sem skráði þetta allt saman niður. Þannig að við höfum vitnisburðinn til að kveða upp dóm af einhverju viti," segir Guðni Th. Jóhannesson.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Sjá meira