Innlent

Lögregla reynir að rýma Austurvöll

Frá Austurvelli fyrr í kvöld.
Frá Austurvelli fyrr í kvöld. Mynd/Valgarður Gíslason
Lögreglumenn reyna nú að rýma Austurvöll til þess að hægt verði að slökkva bál sem kveikt var þar fyrr í kvöld. Lögregla nýtur aðstoðar slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins.

Þúsundir manna mótmæltu á Austurvelli í kvöld á sama tíma og fram fóru umræður á Alþingi um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Eftir klukkan tíu tók að fækka verulega fyrir utan þinghúsið enn þrátt fyrir það voru fjölmargir mótmælendur enn á Austurvelli á tólfta tímanum.


Tengdar fréttir

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

Segir Jóhönnu uppiskroppa með lausnir

„Við búum í landi þar sem 90% þjóðarinnar bera ekki traust til þjóðþingsins og stórhluti þjóðarinnar telur að þingmenn hafi ekki lengur umboð til að sitja á þingi. Hluti þessa fólks var hér fyrir utan á föstudaginn og vildi tjá þingmönnum það. En hvað gerðu þingmenn? Jú, þeir flúðu undan almenningi með lögregluvernd inn í þinghúsið þar sem þeir ávörpuðu ekki fjöldann heldur hvern annan,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

Páll Óskar með pönnu á Austurvelli - myndir

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er einn hinna fjölmörgu sem mættir eru fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli. Hann ber þar pönnu með sleif, taktfastur að vanda.

Jóhanna útilokar ekki þjóðstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar að boða formenn stjórnmálaflokkanna á fund á morgun. Hún útilokar ekki þjóðstjórn.

„Það er órói í samfélaginu“

„Það er órói í samfélaginu eins og við heyrum glöggt hér. Réttlát gremja og reiði er útbreidd vegna alls þess sem gerst hefur á Íslandi. Margir eiga um sárt að binda. Við skulum sína því skilning,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Sigmundur Davíð: Ofbeldi verður aldrei liðið

„Það verður að viðurkennast að í samfélaginu er að skapast hættuástand,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi þegar fram fóru umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Bjarni: Ríkisstjórnin gefur enga von

„Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í kvöld. Hann sagði ræðu Jóhönnu ekki vera í takt við veruleikann.

Golfkúlum og grjóti kastað í lögreglumenn - myndskeið

Golfkúlum og grjóti var kastað í lögreglumenn á Austurvelli í mótmælunum í kvöld. Þetta sagði Geir Jón Þórisson við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis fyrir stundu. Eftir það ákváðu lögreglumennirnir að taka upp hjálma til að skýla sér. Hann segir að grindurnar sem lögreglan setti upp hafi hjálpað lögreglunni mjög mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×