Innlent

Segir Jóhönnu uppiskroppa með lausnir

Þór Saari.
Þór Saari. Mynd/GVA

„Við búum í landi þar sem 90% þjóðarinnar bera ekki traust til þjóðþingsins og stórhluti þjóðarinnar telur að þingmenn hafi ekki lengur umboð til að sitja á þingi. Hluti þessa fólks var hér fyrir utan á föstudaginn og vildi tjá þingmönnum það. En hvað gerðu þingmenn? Jú, þeir flúðu undan almenningi með lögregluvernd inn í þinghúsið þar sem þeir ávörpuðu ekki fjöldann heldur hvern annan," sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

Þór rifjaði upp að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur átt sæti á Alþingi frá 1978 eða í 32 ár. „Þetta var stefnuræðu ríkisstjórnar og stjórnmálamanns sem er uppskroppa með lausnir og langa sögu lausna sem sem virka ekki."

Þá sagði Þór: „Við viljum kosningar. Við viljum kosningar og það strax."






Tengdar fréttir

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

Óeirðarlögreglumenn öllu viðbúnir

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli í kvöld. Þeir héldu sig til hlés í byrjun. Nú hefur hins vegar að minnsta kosti einn mótmælandi verið handtekinn, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Engar upplýsingar hafa borist um það hvers vegna hann var handtekinn. Þúsundir manna eru saman komnir í miðbænum. Sjaldan hafa fleiri verið þar á einum tíma ef undaskildir eru hátíðisdagar.

„Það er órói í samfélaginu“

„Það er órói í samfélaginu eins og við heyrum glöggt hér. Réttlát gremja og reiði er útbreidd vegna alls þess sem gerst hefur á Íslandi. Margir eiga um sárt að binda. Við skulum sína því skilning,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Lögreglumenn aðhafast ekki

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli en þeir hafa allir haldið sig til hlés enn sem komið er. Það sem af er kvöldi hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Flugeldum hefur verið skotið á loft og kveikt í blysum.

Sigmundur Davíð: Ofbeldi verður aldrei liðið

„Það verður að viðurkennast að í samfélaginu er að skapast hættuástand,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi þegar fram fóru umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Bjarni: Ríkisstjórnin gefur enga von

„Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í kvöld. Hann sagði ræðu Jóhönnu ekki vera í takt við veruleikann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×