Innlent

Páll Óskar með pönnu á Austurvelli - myndir

Páll Óskar ber pönnuna með stæl.
Páll Óskar ber pönnuna með stæl.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er einn hinna fjölmörgu sem mættir eru fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli. Hann ber þar pönnu með sleif, taktfastur að vanda.

Ljósmyndari Vísis náði mynd af Páli Óskari með pönnuna rétt í þessu. Sjá má hana í myndasafninu hér að neðan auk annarra mynda sem fanga andrúmsloft kvöldsins í miðbænum. Þær eru ýmist teknar á síma eða myndavél. Þarna má sjá flugelda springa yfir Alþingishúsinu, elda brenna á Austurvelli, tunnutrommara, óeirðarlögreglu og fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×