Innlent

Sigmundur Davíð: Ofbeldi verður aldrei liðið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Mynd/Pjetur
„Það verður að viðurkennast að í samfélaginu er að skapast hættuástand," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í kvöld þegar fram fóru umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

„Tvennt þarf til að hindra að það fari úr böndum. Tryggja þarf að fólk sem orðið hefur fyrir miklum efnahagslegum skakkaföllum og er jafnvel að missa heimili sín fái sanngjarna málsmeðferð og stjórnvöld sýni að þau séu reiðubúin til að verja hagsmuni þegnanna fremur en að sýna alþjóðastofnunum þóknun. Hitt sem þarf að gerast til að koma í veg fyrir glundroða er að stjórnvöld geri almenningi ljóst að ofbeldi verði aldrei liðið."


Tengdar fréttir

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

„Það er órói í samfélaginu“

„Það er órói í samfélaginu eins og við heyrum glöggt hér. Réttlát gremja og reiði er útbreidd vegna alls þess sem gerst hefur á Íslandi. Margir eiga um sárt að binda. Við skulum sína því skilning,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Lögreglumenn aðhafast ekki

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli en þeir hafa allir haldið sig til hlés enn sem komið er. Það sem af er kvöldi hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Flugeldum hefur verið skotið á loft og kveikt í blysum.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Bjarni: Ríkisstjórnin gefur enga von

„Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í kvöld. Hann sagði ræðu Jóhönnu ekki vera í takt við veruleikann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×