Innlent

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Fyrir utan Alþingishúsið. Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli.
Fyrir utan Alþingishúsið. Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli.

Lögregla hefur sett upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla“ á samskiptavefnum Facebook klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Tæplega 2300 manns hafa boðað komu sína á samskiptavefnum.

Forsvarsmenn lögreglunnar vilja ekki tjá sig um hvort aukamannskapur hafi verði kallaður út vegna fyrirhugaðra mótmæla. Á þriðja þúsund manns mótmæltu á Austurvelli þegar Alþingi var sett síðastliðinn föstudag.

Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli.




Tengdar fréttir

Bein útsending á Vísi frá Alþingi og Austurvelli

Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli en Jóhanna Sigurðardóttir mun klukkan 19:50 flytja stefnuræðu forsætisráðherra. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á sama tíma á Austurvelli og á samskiptavefnum Facebook hafa um tvö þúsund manns boðað komu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×