Innlent

Jóhanna útilokar ekki þjóðstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Mynd/Valgarður Gíslason

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar að boða formenn stjórnmálaflokkanna á fund á morgun. Hún útilokar ekki þjóðstjórn.

Þúsundir manna mótmæltu á Austurvelli í kvöld á sama tíma og fram fóru umræður á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra. Málningu var slett á þinghúsið og þá var eggjum, tómömtum og öðru smálegu hent í húsið auk þess sem mótmælendur framkölluðu mikinn hávaða. Golfkúlum og grjóti var kastað í lögreglumenn á Austurvelli í mótmælunum í kvöld. Þetta sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis fyrr í kvöld.

Jóhanna sagði í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins sérkennilegt að flytja stefnuræðu undir þessum kringumstæðum. „Það sem upp úr stendur á þessu kvöldi eru auðvitað þessi fjölmennu mótmæli hér fyrir utan. Við sem erum hérna inni förum auðvitað ekki grafgötur með það að það kraumar undir niðri mikil óánægja og reiði hjá fólki sem okkur ber að taka alvarlega. Ég rétti út sáttahönd í kvöld vegna þess að það er mjög mikilvægt, og ég held að það sé krafan hér í þessu húsi, að við tökum höndum saman og finnum lausnir fyrir fólkið sem er miklu skuldabasli. Ég lít svo á að það sé stærsta verkefnið."

„Við sjáum svo til með framhaldið"

Jóhanna sagðist ætla að boða formenn stjórnmálaflokkanna á fund á morgun til að fara yfir stöðu mála. „Það er mjög mikilvægt að við tökum þessi mótmæli alvarlega."

Aðspurð hvort til greina komi að mynda þjóðstjórn sagði Jóhanna: „Fyrst af öllu kemur til greina. og það er það sem ég ætla að gera, er að setjast saman yfir málin. Við sjáum svo til með framhaldið."




Tengdar fréttir

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

Segir Jóhönnu uppiskroppa með lausnir

„Við búum í landi þar sem 90% þjóðarinnar bera ekki traust til þjóðþingsins og stórhluti þjóðarinnar telur að þingmenn hafi ekki lengur umboð til að sitja á þingi. Hluti þessa fólks var hér fyrir utan á föstudaginn og vildi tjá þingmönnum það. En hvað gerðu þingmenn? Jú, þeir flúðu undan almenningi með lögregluvernd inn í þinghúsið þar sem þeir ávörpuðu ekki fjöldann heldur hvern annan,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

Páll Óskar með pönnu á Austurvelli - myndir

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er einn hinna fjölmörgu sem mættir eru fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli. Hann ber þar pönnu með sleif, taktfastur að vanda.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Lögreglumenn aðhafast ekki

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli en þeir hafa allir haldið sig til hlés enn sem komið er. Það sem af er kvöldi hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Flugeldum hefur verið skotið á loft og kveikt í blysum.

Sigmundur Davíð: Ofbeldi verður aldrei liðið

„Það verður að viðurkennast að í samfélaginu er að skapast hættuástand,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi þegar fram fóru umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Bjarni: Ríkisstjórnin gefur enga von

„Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í kvöld. Hann sagði ræðu Jóhönnu ekki vera í takt við veruleikann.

Golfkúlum og grjóti kastað í lögreglumenn - myndskeið

Golfkúlum og grjóti var kastað í lögreglumenn á Austurvelli í mótmælunum í kvöld. Þetta sagði Geir Jón Þórisson við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis fyrir stundu. Eftir það ákváðu lögreglumennirnir að taka upp hjálma til að skýla sér. Hann segir að grindurnar sem lögreglan setti upp hafi hjálpað lögreglunni mjög mikið.

Ólíklegt að ein ræða geti sefað reiði almennings

Mjög ólíklegt er að einhver ein ræða, sama hversu góð hún er, geti sefað þá reiði sem virðist komin í almenning, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í kvöld. Hann segir ræðu Jóhönnu hafa verið mjög dæmigerða miðað við hvernig stefnuræður forsætisráðherra hafa verið hingað til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×