Erlent

Gæti fengið sjö ár fyrir að stórslasa kvikmyndastjörnu

Aretha virðist heldur miður sín, enda haldið framhjá henni og hún sló kvikmyndastjörnu með flösku í andlitið og gæti farið í sjö ára fangelsi.
Aretha virðist heldur miður sín, enda haldið framhjá henni og hún sló kvikmyndastjörnu með flösku í andlitið og gæti farið í sjö ára fangelsi.

Aretha Wilson á yfir höfði sér sjö ára fangelsi verði hún fundin sek um alvarlega líkamsárás gegn ofurstjörnunni, Leonardo DiCaprio.

Aretha gerði þau mögnuðu mistök að ruglast á kærastanum sínum, sem hafði haldið framhjá henni, og DiCaprio, með þeim afleiðingum að hún sló flösku í andlitið hans. Flaskan brotnaði og DiCaprio skarst allur í andlitinu.

Honum var þegar komið undir læknishendur enda blæddi gríðarlega úr sárum hans. Sauma þurfti tólf spor í andlitið.

Árásin átti sér stað árið 2005 á meðan stórstjarnan lék í kvikmyndinni The Departed. DiCaprio var þá í tökuhléum.

Aretha flúði land eftir árásina en hún var síðan handtekin í Kanada þaðan sem hún var framseld til Bandaríkjanna. Réttarhöldin standa nú yfir en DiCaprio hefur ekki mætt í þau.

Dómarinn sagði málið alvarlegt enda litið sem svo á að árásin hafi verið lífshættuleg.

Aretha hefur nú setið í tæpt ár í gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×