Sakar ríkisstjórnina um ófaglegar ráðningar Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. ágúst 2010 10:34 Bjarni Benediktsson segir ófaglega staðið að ráðningum. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekkert fullyrða um það hvort skipan Runólfs Ágústssonar í embætti Umboðsmanns skuldara hafi verið pólitísks eðlis. Árni Páll viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í gær að hann og Runólfur væru kunningjar en þau tengsl hefðu ekki haft áhrif á skipan í embættið. Bjarni segir þó að það hafi skort á fagmennsku við ráðningar í stjórnarráðinu í tíð starfandi ríkisstjórnar. „Þegar saman er tekið það hvernig staðið hefur verið að mannaráðningum í stjórnarráðinu frá myndun þessarar ríkisstjórnar - og sá langi listi skoðaður - þá er ekki annað hægt en að sjá mjög ákveðið mynstur sem fer mjög á skjön við yfirlýsingar forystumanna ríkisstjórnarinnar um aukið gegnsæi og fagmennsku við mannaráðningar," segir Bjarni Benediktsson. Hann vill ekki greina frá hvaða stöður hann eigi sérstaklega við. „Það verður bara hver að skoða það fyrir sig. Þetta er langur listi af fólki. Þetta eru margar ráðningar án auglýsinga. Mönnum hefur verið vikið frá sem hafa starfað áratugum saman í stjórnarráðinu til að koma öðru fólki að án auglýsinga," segir Bjarni. Bjarni segir ekki vera sérstakt tilefni til þess að draga hæfi mann í efa fyrir það eitt að þeir hafi með einhverjum hætti tengst stjórnmálaflokkum. „En þegar þessi langi listi er skoðaður þá finnst mér nú dragast upp nokkuð skýr mynd. Það er bara þetta heildaryfirbragð á mannaráðningum í stjórnarráðinu sem ég er að vísa til," segir Bjarni. Hann bendir auk þess að á ráðning forstjóra Íbúðalánasjóðs sé ófrágengin. Þar hafi stjórn Íbúðalánasjóðs vilja ráða ákveðinn umsækjanda en ráðuneytið óskað eftir því að málið fengi að bíða. Ekki náðist tal af Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingflokksformanni Samfylkingarinnar, vegna málsins og Skúli Helgason varaformaður þingflokksins er staddur erlendis í sumarfríi.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira