Búast má við fleiri aftökum 30. janúar 2010 06:00 Fjölmenn mótmæli brutust út á síðasta ári og hafa blossað upp af og til síðan. nordicphotos/AFP „
Ef við sýnum veikleika nú þá verður framtíðin verri,“ sagði Ahmed Jannati, einn af harðlínuklerkunum í Íran við föstudagsbænir í gær. „Það er ekkert rúm fyrir íslamska miskunnsemi.“ Jannati er áhrifamikill í landinu og flytur oft aðalpredikun við bænahald á föstudögum, sem eru helgidagar í viku múslima. Ummæli hans í gær þykja ótvíræð vísbending um að fleiri stjórnarandstæðingar verði teknir af lífi á næstunni. Tveir menn voru teknir af lífi á fimmtudag, en þeir voru báðir handteknir í mótmælum sem fram fóru í kjölfar umdeildra forsetakosninga síðasta sumar. Fjölmenn mótmæli brutust út í kjölfar kosninganna. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa fordæmt aftökurnar á fimmtudag og segja réttarhöldin yfir þeim ekki hafa uppfyllt lágmarkskröfur um réttláta málsmeðferð. „Aftökurnar eru þær fyrstu svo vitað sé sem tengjast mótmælunum um allt landið í kjölfar kosninganna,“ segir í yfirlýsingu samtakanna, sem óttast að fleiri mótmælendur verði teknir af lífi. „Að minnsta kosti níu aðrir eru á dauðadeild í Íran eftir álíka sýndarréttarhöld.“- gb
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira