Formaður fulltrúaráðsins vísar orðum bæjarstjórans á bug 7. janúar 2010 20:13 Óttar Felix. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi vísar á bug orðum Gunnsteins Sigurðssonar, bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna, um að togstreita og óróleiki sé meðal sjálfstæðismanna í Kópavogi. Ekkert sé fjærri sannleikanum. Gunnsteinn tók við sem bæjarstjóri í Kópavogi í júní eftir óróleika í bæjarpólitíkinni sem varð til þess að Gunnar Birgisson lét af embætti bæjarstjóra og tók sér hlé frá störfum sem bæjarfulltrúi. Nú hefur Gunnsteinn ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi bæjarstjórnarkosningum. Ástæðan er óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í Kópavogi sem hann segir að hafi verið viðvarandi síðan í sumar. Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins sagði bæjarstjórinn ennfremur að Gunnar og stuðningsmenn hans hafi unnið gegn sér. Þetta kannast Óttar Felix Hauksson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, ekki við. „Ég vísa því líka á bug að það sé óróleiki og togstreita meðal sjálfstæðismanna í Kópavogi. Þetta er ekki rétt." „Gunnar er mjög vinsæll forystumaður," segir Óttar og bendir á að Gunnsteinn hafi skipað annað sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í síðustu kosningum og Gunnar það fyrsta. Síðan þá hafi Gunnar stigið til hliðar vegna lífeyrissjóðsmálsins svokallaða en jafnframt gefið út að hann ætli að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Óttar telur líklegt að það hafi haft þau áhrif að Gunnsteinn sækist ekki eftir endurkjöri. Fréttastofa reyndi að ná tali af Gunnari vegna málsins án árangurs.
Tengdar fréttir Bæjarstjórinn stígur til hliðar vegna óróleika meðal sjálfstæðismanna Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Ástæðan er óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu sem hefur verið viðvarandi síðan í sumar. 7. janúar 2010 18:07 Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Erlent Fleiri fréttir Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Sjá meira
Bæjarstjórinn stígur til hliðar vegna óróleika meðal sjálfstæðismanna Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Ástæðan er óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu sem hefur verið viðvarandi síðan í sumar. 7. janúar 2010 18:07