Umfjöllun: Eyjamenn kláruðu Grindvíkinga einum fleiri Rafnar Orri Gunnarsson skrifar 6. júní 2010 15:00 Finnur Ólafsson og Jóhann Helgason í leiknum í dag. Mynd/Vilhelm
ÍBV sigraði Grindavík, 1-2, er liðin áttust við á Grindavíkurvelli í Pepsi-deild karla. Eyjamenn kláruðu leikinn einum fleiri en heimamenn misstu mann útaf þegar að hálftími var eftir og það reyndist of mikið fyrir Grindavíkinga sem þurftu að játa sig sigraða eftir fínan leik liðsins. Leikurinn fór rólega af stað og bæði lið fengu ágætis færi til að skora. Það var mikil barátta inn á miðjunni en eftir því sem leið á leikinn voru Eyjamenn líklegri til að skora. Rétt fyrir leikhlé kom svo loks fyrsta mark leiksins en heimamenn voru búnir að bjarga á línu rétt áður en markið leit dagsins ljós. Tryggvi Guðmundsson skallaði þá boltann inn fyrir, þar var Eyþór Helgi Birgisson mættur sem fór framhjá varnarmanni heimamanna og kláraði færið sitt vel í fjærhornið. Gestirnir leiddu í hálfleik, 0-1. Heimamenn komu sprækir frá búningsherbergjunum en þeir voru snöggir að svara í síðari hálfleik. Matthías Örn Friðriksson jafnaði leikinn fyrir Grindvíkinga með skemmtilegri hælspyrnu úr stuttu færi og leikurinn fór á fullt. Það dró til tíðinda á 62. mínútu leiksins en þá fékk Jóhann Helgason að líta sitt annað gula spjald og þar með rauða spjaldið. Jóhannes Valgarðsson góður dómari leiksins var viss í sinni sök og vísaði Jóhanni útaf eftir ljóta tæklingu. Það reyndist heimamönnum erfitt að vera einum færri og gestirnir sóttu stíft að marki Grindvíkinga. Eyjamenn tóku svo forystuna á ný en varamaðurinn Dennis Sytnik sem var nýlega kominn inn á skoraði glæsilegt mark með föstu skoti rétt fyrir utan teig og tryggði þar með Eyjamönnum stigin þrjú. Bæði lið áttu góð marktækifæri undir lokin en náðu ekki að gera sér mat úr því og lokatölur hér í sólinni á sjómannadaginn í Grindavík, 1-2, gestunum í vil. Grindavík - ÍBV 1-2 (0-1) 0-1 Eyþór Helgi Birgisson (38.) 1-1 Matthías Örn Friðriksson (48.) 1-2 Dennis Sytnik (76.) Skot (á mark): 10-19 (5-7) Varin skot: Rúnar 4 - Albert 4 Horn: 5-9 Aukaspyrnur fengnar: 6-15 Rangstöður: 6-6 Dómari: Jóhannes Valgeirsson 8 Áhorfendur: 853 Grindavík 4-5-1 Rúnar Dór Daníelsson 5 Ray Anthony Jónsson 4 Auðun Helgason 5 Marko Valdimar Stefánsson 5 (72,. Loic Mbang Ondo 5 ) Jósef Kristinn Jósefsson 5 Jóhann Helgason 3 Matthías Örn Friðriksson 6 Orri Freyr Hjaltalín 5 Alexander Magnússon 4 (80,. Guðmundur Egill Bergsteinsson - ) Grétar Ólafur Hjartarson 5 (72,. Óli Baldur Bjarnason 4 ) Gilles Mbang Ondo 6 ÍBV 4-4-2 Albert Sævarsson 5 James Hurst 5 Matt Garner 6 Finnur Ólafsson 6 Þórarinn Ingi Valdimarsson 5 Ásgeir Aron Ásgeirsson 5 (62,. Dennis Sytnik 6 ) Eiður Aron Sigurbjörnsson 6 Tonny Mawejje 6 (82,. Arnór Eyvar Ólafsson - ) Rasmus Christiansen 5 Eyþór Helgi Birgisson 6 (76,. Yngvi Magnús Borgþórsson - ) Tryggvi Guðmundsson 7 - Maður leiksins
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira