Umframorka Landsvirkjunar eftirsótt 24. febrúar 2010 05:30 Landsvirkjun á 40 MW til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Iðnaðarráðherra hefur nefnt þann möguleika að álver í Helguvík fái þá orku til bráðabirgða. Gagnaver á Norðurlandi og kísilmálmverksmiðja í Helguvík sækjast eftir þessum sömu megavöttum.Fréttablaðið/Vilhelm
Mikil sókn er í þá umframorku sem til er í raforkukerfi Landsvirkjunar. Að minnsta kosti þrjú stóriðjufyrirtæki sækjast eftir umframorkunni. „Fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunar. Gagnaver Verne Holding á Keflavíkurflugvelli hefur þegar tryggt sér 25 megavött úr þeim potti, sem Landsvirkjun hefur til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Eftir standa þá um 40 megavött. Gagnaver, sem fyrirtækið Greenstone hyggst reisa við Blönduós, og kísilmálmverksmiðja, sem Tomahawk er með á prjónunum í Helguvík, ásælast bæði þá orku. Að auki nefndi Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra nýlega að hún sæi ekkert því til fyrirstöðu að Landsvirkjun ráðstafaði þessari sömu umframorku til álvers Norðuráls í Helguvík en raforkuþörf þess hefur ekki enn verið leyst. Stjórn Landsvirkjunar samþykkti sumarið 2007 að gera ekki nýja samninga um sölu raforku til álvera á Suðvesturlandi. Í samræmi við það hefur Landsvirkjun engar viðræður átt um að leggja Norðuráli til raforku vegna Helguvíkurverkefnisins. Katrín Júlíusdóttir sagði við Fréttablaðið að hún telji koma til greina að Landsvirkjun kanni möguleika á að útvega álverinu í Helguvík tímabundið orku af umframorku sinni: „Mín grundvallarafstaða er sú að Landsvirkjun eigi að reka með því sjónarmiði að hún fái sem mest fyrir sína orku,“ sagði Katrín. Ef stjórn fyrirtækisins telji þjóna því markmiði gæti fyrirtækið ákveðið að brúa bil fyrir álverið í Helguvík, meðan unnið er að því að byggja upp afkastagetu jarðvarmavirkjana á Hengilssvæðinu og Reykjanesi. „Auðvitað er alltaf hægt að endurskoða svona samþykktir,“ segir Agnar Olsen. „Það er ekki komið í neina alvöruumræðu; það á alveg eftir að skoða það betur.“ Landsvirkjun hefði enga aðkomu haft að orkuöflun álversins í Helguvík. Umframafl Landsvirkjunar nemur nú um 40 megavöttum af 1.860 megavatta uppsettu afli sem framleitt er með 37 vélum í virkjunum Landsvirkjunar. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira