Fékk rautt og getur því spilað bikarúrslitaleik - myndband Elvar Geir Magnússon skrifar 6. ágúst 2010 12:45 Guðmundur Sævarsson.
Rauða spjaldið sem Guðmundur Sævarsson, bakvörður FH, fékk í sigurleiknum gegn ÍBV í gær gerir það að verkum að hann er löglegur í bikarúrslitaleikinn gegn KR þann 14. ágúst. Guðmundur fékk að líta gula spjaldið í fyrri hálfleik en það var hans fjórða áminning á tímabilinu. Hann fékk svo annað gult spjald í uppbótartíma og þar með rautt. Hefði hann ekki fengið það spjald hefði hann misst af bikarúrslitaleiknum vegna leikbanns. Aganefnd úrskurðar á þriðjudaginn og hefði Guðmundur aðeins fengið gult spjald í leiknum í gær hefði hann verið dæmdur í leikbann sem hefði tekið gildi næsta föstudag. Þar með hefði hann verið útilokaður frá bikarúrslitaleiknum. En þar sem hann fékk rautt þá strokast gula spjaldið út og hann tekur sjálfkrafa út leikbann í næsta leik FH sem er gegn Breiðabliki á sunnudaginn. Hann verður því löglegur gegn KR en með þrjú gul á bakinu. Brot Guðmundar í uppbótartímanum úti á miðjum velli þegar FH var að vinna 3-1 virtist því ekki þjóna neinum öðrum tilgangi en að hagræða leikbanni hans. Með því að smella hér geturðu séð svipmyndir úr leiknum en í lok myndbandsins sést brot Guðmundar. Þegar hann gengur af velli má svo sjá glott á andliti hans.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjá meira