Innlent

Bilun í ljósleiðara á Vopnafirði

Frá Vopnafirði.
Frá Vopnafirði. Mynd/Vopnafjordur.is
Bilun hefur komið upp í stofnneti Mílu á norð-austurlandi. Bilunin kom upp á Vopnafirði og virðist hún vera í búnaði á vegum fyrirtækisins. Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri lausna hjá Mílu, segir að bilunin hafi víðtæk áhrif. Alveg frá Vopnafirði til Kirkjubæjarklausturs.

Aðallega er um að ræða óþægindi hjá þeim sem nota ljósleiðarann til að horfa á sjónvarpið. Hún segir að viðgerð sé hafin og verið er að kanna hversu alvarleg bilunin er. Ómögulegt er að segja hvenær ljósleiðarinn kemst í lag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×