Íslenski boltinn

Tryggvi: Eyjamenn eru svolítið sérstakir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fréttablaðið/Anton
Eftir níu umferðir í Pepsi-deild karla er ÍBV aðeins stigi á eftir toppliði Keflavíkur. ÍBV hefur ekki verið þekkt fyrir að byrja mót með miklum látum en nú er breyting á.

Árangur Eyjaliðsins er ekki síst athyglisverður fyrir þær sakir að liðið hefur aðeins leikið þrjá heimaleiki í sumar. ÍBV mætir Stjörnunni á „teppinu" á sunnudag og síðan fær liðið heila fimm heimaleiki í röð sem er líklega einstakt.

„Ég get ekki sagt að ég hafi átt von á því að við yrðum þetta öflugir. Innst inni leyfði ég mér samt að vona. Planið var samt að gera eitthvað af viti í sumar og blanda sér í toppbaráttuna. Það er ein ástæðan fyrir því að ég var meðal annars fenginn til liðsins. Heimir sagði í viðtali um daginn að við ætluðum okkur Evrópusæti. Þá hlógu margir en við stefnum ótrauðir á að vera áfram í toppbaráttu," sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, en hann segir Eyjaliðið vera sterkara en margir telja.

„Ég vil meina að við séum með bestu vörnina á Íslandi í dag í Garner, Rasmus, Eiði og James Hurst. Albert er síðan búinn að vera frábær í markinu. Hann hefur átt margar „sigurvörslur". Hann hefur kannski varið úr dauðafæri og svo förum við upp og skorum," sagði Tryggvi og segir stemninguna í liðinu vera svipaða og þegar hann spilaði á síðustu öld með félaginu.

„Það er mikil samvinna og samkennd í þessu liði. Virkilega góð stemning enda erum við Eyjamenn og við erum svolítið sérstakir. Stemningin er ekki ósvipuð." Tryggvi segir það hafa skipt máli að reynslumenn á borð við hann og Finn Ólafsson séu í liðinu. Þeir geti haldið bolta og hjálpað liðinu við að komast upp völlinn.

„Andri og Finnur eru gríðarlegir vinnuhestar og svo eru strákarnir frammi fljótir. Það vantaði reynslu í liðið en það er meiri reynsla í þessu liði í ár en í fyrra. Svo hafa menn stigið upp og eru að spila betur en í fyrra."

Tryggvi hefur hrifist mjög af Heimi Hallgrímssyni, þjálfara liðsins. „Hann er ótrúlega jákvæður og skemmtilegur þjálfari. Hann er einn skipulagðasti og besti þjálfari sem ég hef haft. Ég vissi að hann væri mjög duglegur og nú fæ ég að upplifa það sjálfur. Það er magnað að fylgjast með honum vinna. Hann er líka duglegur að tala við menn og gefa þeim viðbrögð. Ég hef saknað þess hér á Íslandi en það var mikið um slíka vinnu í Noregi," sagði Tryggvi sem bíður spenntur eftir því að fá fimm heimaleiki í röð.

"Það blundaði alltaf í mér að koma heim og loka hringnum. Ég sá fram á meiri bekkjarsetu hjá FH en fékk tækifæri til að vera lykilmaður hér. Ég sé ekki eftir því að hafa tekið því tækifæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×