Innlent

Leyndi Björgvin ekki upplýsingum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir í greinagerð sem hún sendi öllum þingmönnum í dag, að hún hafi ekki leynt Björgvin G. Sigurðsson upplýsingum í aðdraganda hrunsins.

Greinagerðin er þrettán blaðsíður, en hún gerir þar athugasemdir við kæruatriði gegn sér í tillögu þingmannanefndarinnar. Magnús Orri Schram og Oddný Harðardóttir sögðu í þingsályktunartillögu að Ingibjörg hafi haldið upplýsingum leyndum fyrir Björgvini G. Sigurðssyni, fyrrverandi viðskiptaráðherra.

Hún krefst þess að gerð sé grein fyrir því hvaða upplýsingum hún á að hafa leynt Björgvini. Í greinagerðinni segir Ingibjörg að rök þeirra Magnúsar og Oddnýjar séu ótrúleg. Hún gerir þá kröfu að Magnús og Oddný upplýsi hvað þau hafi fyrir sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×