Innlent

Sólstafir starfa áfram - vonast eftir fjármagni

Erla Hlynsdóttir skrifar
Viðtalsherbergi Sólstafa
Viðtalsherbergi Sólstafa Mynd: Halldór/bb.is
„Það er rétt er að við höfum ekki fengið neitt fjármagn og sáralítið er eftir af því sem við eigum í okkar sjóði en við höfum þó tekið þá ákvörðun að gefast ekki upp og reyna að halda rekstrinum gangandi áfram," segir í tilkynningu frá Sólstöfum, systursamtökum Stígamóta á Vestfjörðum.

Vísir sagði frá því gær að Sólstafir stæðu frammi fyrir lokun vegna fjárhagsörðugleika og vitnaði í nýútkomna skýrslu um félagasamtök sem styðja konur sem beittar eru ofbeldi.

Harpa Oddbjörnsdóttir, starfskona Sólstafa, segir að þegar skýrslan var unnin hafi samtökin séð fram á að þurfa að loka. Sú staða hafi breyst eftir að Sólstafir sögðu upp fyrri leigusamningi og hóf samstarf við Ráðgjafa- og nuddsetrið á Ísafirði sem samtökin hafa fengið aðstöðu fyrir einkaviðtöl og fundi.



Allt í sjálfboðastarfi


Allt starf Sólstafa er unnið í sjálfboðavinnu og verður það áfram. Harpa er bjartsýn á að fjármagn komi inn í reksturinn með einhverjum hætti bráðlega.

Skýrslan sem fjallað var um í fréttinni er unnin af Guðrúnu Helgu Sederholm fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Skýrslan ber heitið „Rannsókn á ofbeldi gegn konum. Þjónusta 11 félagasamtaka". Tók hún meðal annars viðtal við starfskonu Sólstafa nú í vor við vinnslu hennar. Staða Sólstafa virðist ekki jafn bágborin nú og þegar viðtalið fór fram.

Húsnæði Sólstafa á ÍsafirðiMynd: bb.is
Um þessar mundir vinna Sólstafir með kvennahreyfingunni Skotturnar að undirbúningi kvennafrídagsins 2010 . Eru Aðildarfélög Skottanna á norðanverðum Vestfjörðum eru nú að undirbúa daginn á því svæði. Sólstafir eru einn stofnfélaga í Skottunum.

Rauðir sokkar til styrktar Sólstöfum

Samhliða merkja- og bókasölu á vegum Skottanna um allt land verða Skottur á norðanverðum Vestfjörðum með aukasöfnun þar sem ágóðinn mun renna beint til Sólstafa.

Þar hefur meðal annars verið biðlað til prjónafólks um að prjóna rauða sokka sem síðan verða seldir. Þá verða einnig hannaðir og seldir eyrnalokkar í formi rauðra sokka og fjölmargir listamenn á svæðinu hafa ákveðið að gefa listaverk sem síðan verða boðin upp.




Tengdar fréttir

Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni

Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×