Innlent

Opna vínbúð í stað lögreglustöðvar

Íbúar Seyðisfjarðar þurfa að sækja lögregluaðstoð lengra að en áfengi
Íbúar Seyðisfjarðar þurfa að sækja lögregluaðstoð lengra að en áfengi Mynd: GVA

Vínbúð hefur verið opnuð í húsnæðinu sem áður hýsti lögreglustöðina á Seyðisfirði. Fangaklefarnir voru brotnir niður til að gera rýmið hentugra til áfengissölu. Lögreglan hefur nú enga aðstöðu á Seyðisfirði og þurfa bæjarbúar að óska eftir þjónustu lögreglu frá Egilsstöðum.

Frá þessu er greint á vef Austurgluggans.

Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, er afar ósáttur við stöðuna og segir engan sparnað í þessu fólginn fyrir ríkið. „Þetta eru auðvitað bara klassísk aðferðafræði ríkisins. Það er dagljóst að lítið sem ekkert samband er á milli ríkisstofnna, að maður tali nú ekki um ráðuneyta," segir Ólafur í samtali við Austurgluggann.

Hann segir það ekki ganga upp að sýslumannsembættinu sé gert að spara pening með því að hætta að leigja húsnæði af Fasteignum ríkisins. „Á þeim gjörningi sparar ríkið ekki krónu. Síðan selja Fasteignir ríkisins húsið til ÁTVR fyrir einhverja sýndarfjárhæð sem er auðvitað bara millifærsla á tölum því eigandinn er eftir sem áður Íslenska ríkið."

Að sögn Ólafs er aðstöðuleysi lögreglunnar þó sýnu verst því eftir að fangaklefar hafa verið brotnir niður er ljóst að húsnæðið nýtist ekki aftur sem lögreglustöð.

Vefur Austurgluggans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×