Heimir: Umræðan hefur verið hættuleg fyrir okkur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2010 16:45
FH er eitt af þeim þremur liðum sem á möguleika á Íslandsmeistaratitlinum þegar lokaumferð Pepsi-deildar karla fer fram á morgun. FH stendur þó verst af þessum þremur liðum. Breiðablik er í efsta sæti deildarinnar með 43 stig, ÍBV er með 42 og FH með 41. „Það eina sem við getum gert er að hugsa um okkar leik og reyna að vinna hann. Við myndum aldrei fyrirgefa okkur ef við myndum klúðra okkar málum og ef eitthvað gerðist í hinum leikjunum," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, en liðið mætir Fram á útivelli á morgun. „Við þurfum því að standa klárir á okkar leik." Hann segir að umræðan sem hefur verið fyrir lokaumferðina sé hættuleg fyrir hans lið. „Það eru allir að tala um að FH muni klára sinn leik. Meðal annars vegna þess að þrír leikmenn hjá Fram eru í banni og tveir meiddir. Ég met stöðuna hins vegar þannig að það muni ekki hjálpa okkur neitt. Fram mun stilla upp ungum og efnilegum leikmönnum sem vilja sýna sig og sanna í leiknum. Það er nóg af þeim í Fram." Af þessum þremur liðum sem keppa um titilinn á morgun býr þó FH óneitanlega yfir mestu reynslunni enda hefur liðið orðið fimm sinnum meistari á síðustu sex árum og vann auk þess bikarmeistaratitilinn í sumar. „Það gæti eflaust hjálpað okkur en um leið og við förum að leyfa okkur að hugsa á þessum nótum þá lendum við í vandræðum. Við þurfum að mæta 100 prósent einbeittir og klára okkar leik. Ef við hugsum um eitthvað annað þá lendum við í vandræðum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Fleiri fréttir „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Sjá meira