Þorvaldur: Get bæði verið sáttur og ósáttur með tímabilið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2010 16:44 Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram. Mynd/Anton
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, varð að sætta sig við 3-0 tap á móti FH í dag þrátt fyrir að hans menn hafi sýnt lipra takta stóran hluta úr leiknum. FH-liðið spilaði skynsamlega úr sínu og landaði sigri og um leið öðru sætinu í deildinni. „Ef við hefðum nýtt færin okkar þá hefðum við unnið leikinn. Við vorum betri í fyrri hálfleik og spiluðum þá vel en við förum inn í hálfleik 1-0 undir. Við löbbuðum útaf í þessum leik eftir að hafa tapað 3-0 en ég gat ekki séð að FH hafi verið að spila sinn besta leik. Þeir vinna samt 3-0 og við verðum að sætta okkur við það," sagði Þorvaldur eftir leikinn. „Við gefum þeim þriðja markið með klaufalegum hætti og annað markið er líka klaufalegt. Við fengum góð færi sem við áttum að geta skorað úr en við náðum því ekki því miður. Ég vil óska þeim til hamingju með árangurinn og annað sætið því þeir eiga það skilið," sagði Þorvaldur. „Ef ég met tímabilið okkar þá get ég bæði sagt að ég er mjög sáttur og ég get líka sagt það að ég er ekki sáttur. Við hefðum alveg getað komist ofar á tímapunktum í mótinu," segir Þorvaldur og útskýrir. „Við hefðum alveg geta komist ofar í töflunni á vissum tímapunktum í mótinu sérstaklega ef að við hefðum haft meiri heppni í meiðslum manna á þessum tímapunktum. Það gerðist líka á þeim tíma sem við lentum í meiðslunum þá voru ákvarðanatökur dómara alveg skelfilegar fyrir okkar hönd. Við misstum meðal annars 3 og 4 menn úr vörninni okkar," sagði Þorvaldur og bætti við: „Ég get líka horft öðruvísi á hlutina og sagt að við hefðum líka getað lent í meiri hrakningum á þeim tíma sem við vorum í vandræðum og vorum líklegir til að vinna ekki leik. Þá hefðum við getað dregist neðar og verður maður því ekki að vera sáttur," sagði Þorvaldur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Sjá meira