Willum áfram með Keflavík: Spennandi tímar framundan Elvar Geir Magnússon skrifar 25. september 2010 16:41 „
Ég held að leikmenn hafi haft gaman að því að spila hér í dag," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 4-1 sigurinn gegn ÍBV. Eyjamenn hefðu staðið uppi sem sigurvegarar Íslandsmótsins með sigri. „Þetta var skemmtilegur leikur og við spiluðum bara vel í dag. Það er margt jákvætt og gaman að sjá ungan strák eins og Arnór Ingva (Traustason) koma sterkan inn. Þetta var fyrsti leikurinn sem hann er í byrjunarliði í efstu deild," sagði Willum en Arnór skoraði í leiknum. „Maður veit að tilfinningin fyrir hann er mögnuð og maður fagnaði með honum." Fjölmargir leikmenn Keflvíkinga verða samningslausir um áramót. „Við höfum verið að vinna í því og það er mjög mikilvægt að halda þessum hópi saman. Við höfum trú á því að það þurfi ekki mikið til að taka skrefið og blanda okkur í toppbaráttu í deildinni," sagði Willum. Það er ekkert fararsnið á Willum og verður hann áfram með liðið. „Jájá, það var lagt upp með það. Það eru spennandi tímar hjá Keflavíkurliðinu og eins og við byrjuðum deildina vöknuðu vonir og væntingar. Þess vegna voru vonbrigðin kannski sterkari og við jöfnuðum okkur seint í þetta," sagði Willum. „Mér fannst umfjöllun fjölmiðla og sérfræðinga um okkar lið oft óvægin. Það er mikil vinna bak við liðið en við lendum í mörgum áföllum. Ómar markvörður meiðist á mikilvægum tímapunkti, Paul McShane meiðist og Jóhann Birnir og Haukur Ingi sem áttu að koma inn í liðið úr meiðslum þeir komu aldrei. Svo meiddist Andri Steinn einnig. Það voru því fimm sterkir leikmenn sem við náðum ekki að vinna með gegnum mótið. Ég efast um að nokkuð lið myndi ekki láta á sjá við þær aðstæður."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fleiri fréttir Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Sjá meira