Minnihlutinn í Kópavogi klikkaði 18. febrúar 2010 11:12 Gísla Tryggvason hefur undanfarin ár starfað sem talsmaður neytenda en tók sér leyfi þegar hann gaf kost á sér í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi sem fer fram 27. febrúar. Þar sækist Gísli eftir fyrsta sætinu. Mynd/Anton Brink
Gísli Tryggvason, lögfræðingur, segir minnihlutaflokkana í Kópavogi líka hafa brugðist þegar ekki tókst að koma í veg fyrir spillingu í bæjarfélaginu. Brýnt sé að gera kjörna fulltrúa ábyrga fyrir störfum sínum. Gísli sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi sem fer fram síðar í mánuðinum. „Ég viðurkenni ábyrgð meirihlutaflokkana sem er mest en ég tel einnig að stjórnarandstaðan og eftirlitsaðilar hafi brugðist þegar svona mikil spilling og háar fjárhæðir komust í gegnum kerfið," segir Gísli og vísar til þess að náinn stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra, sem jafnframt gegnir starfi skoðunarmanns reikninga Kópavogs fyrir sjálfstæðismenn fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar- og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. Gísli segir tillögu oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem gengur út að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins og lækka viðmið svo fram fari útboð, ekki ganga nógu langt. „Upphæðirnar skipta ekki endilega máli því hægt er að laga sig að þeim."Sama gildi um stjórnmálamenn Gísli vill þess í stað auka ábyrgð stjórnmálamanna. Brýnt sé að efla það ferli sem tekur við þegar upp koma umdeild mál. „Það gengur ekki að forstjórar opinberra stofnanna beri ríkari ábyrgð en stjórnmálamenn. Það er hægt að víkja þeim frá störfum strax um stundarsakir og úrskurðarnefnd, sem ég hef oft setið í, ákveður hvort þeir snúi aftur," segir Gísli. Hann vill að sama gildi um stjórnmálamenn og að sjálfstæður aðili fari yfir mál viðkomandi. „Fulltrúarnir þurfa að hafa forsendur til þess að endurmeta gjörðir eða athafnarleysi hins kjörna fulltrúa," segir Gísli. Aukaatriði sé hvort slík nefnd sé á vegum Sambands íslenskra sveitarfélga, stjórnmálaflokka, sveitarfélaga eða í tilviki Alþingis á vettvangi þingsins.
Tengdar fréttir Brýnt að breyta innkaupareglum Kópavogs Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins. Hún hefur lagt fram tillögu í bæjarráði sem gerir ráð fyrir að útboð verði viðhaft vegna verklegra framkvæmda umfram 10 milljónir. Viðmiðið í dag er 20 milljónir. 17. febrúar 2010 10:36 Segir vinnubrögð ámælisverð „Það er ljóst að fyrirtæki Halldórs voru færð verk á silfurfati og tilboða ekki leitað. Það er ólíðandi í opinberri stjórnsýslu og brýnt að alltaf sé leitað tilboða til að tryggja hagstæðasta verð,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. 16. febrúar 2010 03:30 Halldór Jónsson: Þegar skamma á Moskvu verður Albanía fyrir valinu Verkfræðingurinn Halldór Jónsson svarar ásökunum eigin flokksmanna um óeðlileg viðskipti fyrirtækis á hans vegum við Kópavogsbæ í pistli á bloggi sínu í dag. Þar lætur hann að því liggja að árásir á hann séu í raun pólitískar árásir á Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, en hann sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi. 16. febrúar 2010 19:37 Halldór rukkaði Kópavogsbæ nokkrum árum eftir verklok Verkin sem Halldór Jónsson verkfræðingur vann fyrir Kópavogsbæ og Fréttablaðið greindi frá á laugardag tengjast sjö framkvæmdum í bænum á árabilinu 2003 til 2008. 15. febrúar 2010 06:00 Tugmilljónagreiðslur án útboðs Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. 12. febrúar 2010 18:39 Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira
Brýnt að breyta innkaupareglum Kópavogs Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins. Hún hefur lagt fram tillögu í bæjarráði sem gerir ráð fyrir að útboð verði viðhaft vegna verklegra framkvæmda umfram 10 milljónir. Viðmiðið í dag er 20 milljónir. 17. febrúar 2010 10:36
Segir vinnubrögð ámælisverð „Það er ljóst að fyrirtæki Halldórs voru færð verk á silfurfati og tilboða ekki leitað. Það er ólíðandi í opinberri stjórnsýslu og brýnt að alltaf sé leitað tilboða til að tryggja hagstæðasta verð,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. 16. febrúar 2010 03:30
Halldór Jónsson: Þegar skamma á Moskvu verður Albanía fyrir valinu Verkfræðingurinn Halldór Jónsson svarar ásökunum eigin flokksmanna um óeðlileg viðskipti fyrirtækis á hans vegum við Kópavogsbæ í pistli á bloggi sínu í dag. Þar lætur hann að því liggja að árásir á hann séu í raun pólitískar árásir á Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, en hann sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi. 16. febrúar 2010 19:37
Halldór rukkaði Kópavogsbæ nokkrum árum eftir verklok Verkin sem Halldór Jónsson verkfræðingur vann fyrir Kópavogsbæ og Fréttablaðið greindi frá á laugardag tengjast sjö framkvæmdum í bænum á árabilinu 2003 til 2008. 15. febrúar 2010 06:00
Tugmilljónagreiðslur án útboðs Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. 12. febrúar 2010 18:39