Tveir af fréttastofu Stöðvar 2 tilnefndir 27. febrúar 2010 10:37 Lóa Pind Aldísardóttir er tilnefnd til Blaðamannaverðlaunanna. Mynd/Valgarður Gíslason
Tveir fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis eru tilnefndir til Blaðmannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands fyrir árið 2009. Guðný Helga Herbertsdóttir er tilnefnd í flokknum rannsóknarblaðamennska ársins og Lóa Pind Aldísardóttir fyrir bestu umfjöllun ársins. Tilnefningar til verðlaunanna voru kynntar í gærkvöldi en þau eru veitt í þremur flokkum. Rannsóknarblaðamennska ársins 2009, Besta umfjöllun ársins 2009 og Blaðamannaverðlaun ársins 2009. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki, alls 9 tilnefningar. Á laugardaginn eftir viku verður tilkynnt um hver hlýtur verðlaunin í hverjum flokki. Tilnefningarnar eru þessar:Rannsóknarblaðamennska ársins 2009 Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið hér heima og erlendis. Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins. Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu) fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.Besta umfjöllun ársins 2009 Magnús Halldórsson, Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand á fasteignamarkaði á Íslandi. Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB. Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.Blaðamannaverðlaun ársins 2009 Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið" og Halldór Baldursson, Morgunblaðinu, fyrir „Halldór", áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt ljós. Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál. Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira