Efnahagsaðgerðir: Reynt til þrautar að ná samkomulagi 1. desember 2010 12:00 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin reynir nú til þrautar að ná samkomulagi um efnahagsaðgerðir sem hægt verði að kynna í dag. Mikil fundahöld hafa verið í stjórnarráðinu í morgun. Nú fyrir hádegi komu fulltrúar opinberra starfsmanna, Alþýðusambandsins og Hagsmunasamtaka heimilanna til fundar við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisrðaherra, Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Guðbjart Hannesson, félags- og heilbrigðisráðherra og Árna Pál Árnason, viðskiptaráðherra. Steingrímur sagði í viðtali við fréttastofu seinni partinn í gær að niðurstaða yrði að nást á næstu klukkustundum, helst í dag eða á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla forystumenn ríkisstjórnarinnar að kynna fjölþættar aðgerðir til lausnar skuldavanda heimila og fyrirtækja síðar í dag. Þær munu meðal annars kveða á um lækkun greiðslubyrði lána í samvinnu við banka og lífeyrissjóði, hækkun vaxtabóta upp á allt að sex milljarða króna og stofnun félaga utan um auðar íbúðir sem settar verða á leigumarkað. Með stofnun slíkra félaga er vonast til að fasteignaverð hætti að lækka og fasteignamarkaðurinn taki við sér á ný. Skýrist á næstu klukkustundum Fjármálaráðherra sagði einnig í samtali við fréttastofu í gær að aðgerðirnar myndu kosta ríkisstjóð töluverðar fjárhæðir og gera þurfa breytingar á því fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyri þinginu, en afgreiðsla þess er eitt af því sem ýtir á að samkomulag náist sem allra fyrst. Friðrik Ó. Friðriksson, stjórnarformaður Hagsmunasamtaka heimilanna, sagði í samtali við fréttastofu eftir fundinn í morgun að þær aðgerðir sem gripið yrði til nú gætu orðið hluti af enn frekari uppstokkun sem nauðsynleg er til að koma í veg fyrir enn frekari fólksflótta frá landinu. M.a. þyrfti að endurskoða lífeyrissjóðakerfið og fjármögnun þess. Það skýrist því væntanlega á næstu klukkustundum hvort aðgerðirnar líti dagsins ljós í dag. Við fylgjumst með atburðarrásinni á fréttavefnum visi.is og í kvöldfréttum okkar.
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Sjá meira