Gerrard: Þessi þrjú stig geta gert kraftaverk fyrir félagið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2010 14:30 Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, var að vonum sáttur eftir 2-1 sigur á Blackburn í gær enda liðið að vinna sinn fyrsta leik í átta leikjum. Liverpool er enn í fallsæti en Gerrard segir að liðið eigi nú að geta hafið leið sína upp töfluna. „Þessi þrjú stig geta gert kraftaverk fyrir félagið. Það var frábært fyrir Fernando að skora og líka að Joe Cole skyldi leggja markið upp. Við verðum að byggja ofan á frammistöðu okkar í síðustu tveimur leikjum og líta á þetta sem ferska byrjun," sagði Steven Gerrard í viðtali við heimasíðu Liverpool en það má sjá mörk Liverpool í leiknum með því að smella hér. „Við erum ekki að fela okkur á bak við það sem hefur verið að gerast utan vallar hjá félaginu. Við erum í fallsæti af því að við höfum ekki verið nógu góðir. Það er auðvitað gott að málin séu leyst og að stuðningsmennirnir séu ánægðir," sagði Gerrard. „Nú snýst þetta um það að ná mörgum góðum úrslitum í röð og við munum komast að því hvort við séum mennirnir í það. Takist það þá komumst við fljótt ofar í töflunni. Þrír eða fjórir sigrar í röð og við verðum komnir í á miklu betri stað," segir Gerrard og bætti við: „Tímabilið er rétt að byrja og það er nóg af leikjum eftir," sagði Gerrard en næsti deildarleikur liðsins er á móti Bolton um næstu helgi.
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira