Íslenski boltinn

Hörður Sveinsson kominn í Val

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hörður Sveinsson í Keflavíkurbúningnum.
Hörður Sveinsson í Keflavíkurbúningnum.

Kristján Guðmundsson hefur krækt í sinn fjórða leikmann síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Val. Sóknarmaðurinn Hörður Sveinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hlíðarendaliðið.

Hörður er 27 ára gamall og er uppalinn hjá Keflavík. Hann hefur ekki leikið fyrir annað lið en Keflavík hér á landi og skoraði hann sjö mörk í 18 leikjum fyrir liðið í sumar.

Eins og áður sagði er hann er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals síðan Kristján tók við. Áður höfðu varnarmaðurinn Halldór Kristinn Halldórsson og miðjumennirnir Andri Fannar Stefánsson og Guðjón Lýðsson skrifað undir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×