Gæta fórnarlambsins bæði á nóttu og degi 12. janúar 2010 04:00 Það var ekki að sjá að sakborningar í mansalsmálinu svokallaða kviðu því sem þeirra beið í dómsal, þegar þeir voru leiddir til þingfestingar í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Fréttablaðið/stefán
Meint fórnarlamb sakborninganna í mansalsmálinu á Suðurnesjum hefur verið í 24 tíma gæslu og notið hámarksverndar hér á landi. Stúlkan, sem er litháísk, tæplega tvítug, er talin í stórhættu af hálfu sakborninga, eða manna sem þeir þekkja hér. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær, þar sem þingfest var mál á hendur sex karlmönnum, fimm Litháum og Íslendingi. Ríkissaksóknari hefur ákært mennina fyrir mansal. Með hagsmuni fórnarlambsins í huga úrskurðaði dómari, að framkominni kröfu réttargæslumanns litháísku stúlkunnar, að þinghald skyldi vera lokað. Verjendur sakborninganna mótmæltu þessum úrskurði dómara. Þá úrskurðaði dómari að sakborningar skuli víkja úr dómsal meðan stúlkan ber vitni. Íslendingurinn mætti ekki við þingfestingu málsins, en Litháarnir neituðu allir sök. Í ákæru ríkissaksóknara segir að stúlkan hafi verið beitt ólögmætri nauðung, frelsissviptingu og ótilhlýðilegri meðferð áður en og þegar hún var send til Íslands 9. október. Sama hafi gilt um hana í meðförum sexmenninganna hér á landi, sem tekið hafi við henni, flutt hana og hýst í því skyni að notfæra sér hana kynferðislega. Fyrir komuna hingað hafi hún verið svipt frelsi sínu í Litháen og neydd til að stunda vændi þar í landi. Áður en hún var send af stað til Íslands hafi hár hennar verið klippt og litað og tekin af henni ljósmynd sem sett var í fölsuð skilríki. Einn Litháanna fimm, sem ákærðir hafa verið fyrir mansal, hefur einnig verið ákærður fyrir líkamsárásir, fjárkúgun og hylmingu. Manninum er gefið að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás, þar sem hann stakk annan mann í lærið með hnífi, þannig að af hlaust um fjögurra sentimetra langt sár. Atvikið átti sér stað í september 2009. Þá er maðurinn ákærður fyrir aðra líkamsárás. Laugardaginn 29. nóvember 2008, fór hann í félagi við annan á heimili manns, veittist að honum með ofbeldi og sló hann margsinnis hnefahöggum og sparkaði í höfuð hans og líkama. Maðurinn hlaut áverka í andliti og á líkama, auk blóðmigu. Í þriðja lagi er maðurinn ákærður fyrir fjárkúgun. Hann tók bíl af manni með ofbeldi og hótunum og ók honum í heimildarleysi í nokkrar vikur. jss@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira