Ólafur Örn á skýrslu í kvöld og verður númer 16 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. júlí 2010 17:00 Ólafur Örn Bjarnason.
Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, verður í leikmannahópi Grindavíkur þegar liðið mætir Keflavík í Pepsi-deild karla í kvöld. Ólafur Örn tók við þjálfun Grindavíkur fyrr í sumar en fékk í dag leikheimild með liðinu eftir að hafa verið í leikmannahópi Brann í Noregi í síðasta sinn í gær. Brann vann þá 4-1 sigur á Sandefjord á útivelli en hann kom ekki við sögu í leiknum. Hann flaug svo til landsins í morgun og verður í leikmannahópi Grindavíkur í kvöld. „Það kemur bara í ljós hvort ég spila í kvöld en ég ætla nú að greina leikmönnum frá því fyrst en ekki í fjölmiðlum," sagði Ólafur Örn við Vísi í dag. „En það var vissulega alltaf planið að ég myndi spila með Grindavík í sumar eftir að leikheimildin væri komin. Þar með gerum við ekki ráð fyrir því að þurfa að styrkja okkur frekar í vörninni en við erum enn að skoða hvort við þurfum að styrkja okkur annars staðar á vellinum." Ólafur Örn hefur verið með eymsli í baki en segir það ekki há sér mikið. „Ég var slæmur í bakinu í síðasta leik með Brann og er búinn að vera nokkuð slappur um helgina. Þar að auki var langt ferðalag í leikinn og svo aftur langt ferðalag hingað heim strax í kjölfarið. Undirbúningur minn fyrir þennan leik var því ekki eins og best verður á kosið." Hann segir að það hafi verið skrýtið að kveðja Brann eftir sjö ára veru hjá félaginu. „Ég fékk að kveðja almennilega um síðustu helgi þegar síðasti heimaleikurinn minn var með liðinu. Ég kvaddi með söknuði en á móti kemur að við tekur spennandi verkefni hér heima." „Ég á svo von á spennandi leik í kvöld eins og alltaf þegar um grannaslag er að ræða. Bæði lið þurfa sárlega á stigunum að halda og mikið undir í þessum leik."Ólafur Örn er kominn með númer hjá Grindavík og verður í treyju númer sextán.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira