Torres og Gerrard ekki til sölu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. júlí 2010 15:30
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, er farinn að láta til sín taka og hefur nú lýst því yfir að hvorki Fernando Torres né Steven Gerrard séu til sölu. Margir áttu von á því að Torres myndi biðja um sölu er hann kæmi til baka úr sumarfríi en af því virðist ekki ætla að vera. "Ég er búinn að hitta Fernando. Hann er afar geðugur maður og við áttum gott spjall. Hvað okkur snertir þá er hann leikmaður Liverpool og við viljum halda því þannig. Hann er ekki til sölu og við viljum ekki sjá nein tilboð í hann," sagði Hodgson en hann segir Gerrard ekki heldur vera til sölu. "Ég er líka búinn að hitta Steven og við áttum jákvætt spjall. Maður heyrir ýmislegt í blöðunum um þá en það eru bara orðrómar. Steven Gerrard er ekki til sölu og ég er búinn að segja honum það. Við ætlum að byggja liðið í kringum þessa leikmenn." Svo er spurning hvort forráðamenn Chelsea hlusti á þetta en félagið er að undirbúa tilboð í Torres. Chelsea er tilbúið að greiða Liverpool einar 30 milljónir punda á borðið fyrir leikmanninn. Ástæðan er hversu oft leikmaðurinn er meiddur. Torres er metinn á 50 milljónir punda en Chelsea er ekki til í að greiða aukamillurnar 20 fyrr en Torres hefur náð ákveðnum leikjafjölda. Forráðamenn Chelsea telja allt of áhættusamt að greiða beint 50 milljónir fyrir mann sem hefur verið eins mikið meiddur og Torres. Hermt var að viðræður milli félaganna væru hafnar og hafi í raun hafist áður en Torres meiddist í úrslitaleik HM. Spurning hvort Hodgson hafi vitað af því? Torres var mikið meiddur síðasta vetur og það leyndi sér ekki á HM að hann skorti leikæfingu.
Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira