Stærsta snekkja veraldar afhjúpuð 14. febrúar 2010 21:30 200 metrar að lengd eða á við tvo fótboltavelli.
Þrátt fyrir að efnahagskerfi heimsins standi enn á brauðfótum meta sumir það sem svo að milljarðamæringar heimsins séu enn tilbúnir til þess að eignast flottar græjur. Risasnekkjan sem gengur undir vinnuheitinu Project 1000 tekur öllu öðru fram þegar kemur að flottum snekkjum. Báturinn, eða skipið öllu heldur, er enn á teikniborðinu en skipasmiðirnir segja að hægt sé að koma henni fullbúinni á flot innan fimm ára, sé einhver tilbúinn til þess að borga brúsann. Sá sem gerir það, en snekkjan er talin kosta um einn milljarð bandaríkjadala, gæti klárlega státað af flottasta fleyi heimsins. Snekkjan er litlir 200 metrar að lengd og þar með sú stærsta í heimi. Milljarðarmæringurinn Roman Abramovich á þá stærstu sem nú siglir um heimsins höf en sú nýja er 30 metrum lengri. 30 metra snekkjur þykja reyndar bara þokkalegustu bátar. Útbúnaðarlistinn er líka nær óendanlegur. Um borð í skipinu er kvikmyndahús á tveimur hæðum, næturklúbbur og þyrlupallur. Þá er gert ráð fyrir því að hægt verði að keyra bíla beint um borð auk þess sem þar verður 30 metra löng sundlaug, spilavíti og spa. Barirnir um borð verða síðan nokkrir. Hönnuður snekkjunnar er ekki í nokkrum vafa um að kaupandi finnist innan tíðar. „Ef þú ert orðinn vanur því að búa í höll með tugum þjóna þá nennir þú ekkert að vera á einhverri smásnekkju," segir hann.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira