Íslenski boltinn

ÍBV krækti í Guðmund

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Selfyssingurinn efnilegi. Guðmundur Þórarinsson, skrifaði í kvöld undir eins árs samning við spútniklið síðasta sumars, ÍBV. Frá þessi er greint á fótbolti.net í kvöld.

Hinn 18 ára gamli Guðmundur vakti verðskuldaða athygli síðasta sumar en hann var einn af sprækustu leikmönnum Selfoss. Hann er yngri bróðir Ingólfs sem er betur þekktur fyrir söng en fótbolta.

Guðmundur hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og á örugglega eftir að reynast ÍBV góður liðsstyrkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×