Íslenski boltinn

Mjög erfitt að meta hvar við stöndum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fjölnir er Íslandsmeistari í Futsal árið 2011.
Fjölnir er Íslandsmeistari í Futsal árið 2011. Fréttablaðið/Vilhelm

Willum Þór Þórsson er landsliðsþjálfari í Futsal en eftir mánuð er komið að fyrsta móti hjá liðinu. Þá verður leikið í forkeppni EM þar sem Ísland er í riðli með Grikklandi, Armeníu og Lettlandi. Leikið verður hér á landi.

Willum hefur tvívegis stýrt sínum liðum til Íslandsmeistaratitils í greininni og telur að Futsal hafi nýst sínum liðum vel. „Þessi leikur er mjög hraður og það er ýmislegt í honum sem er keimlíkt hefðbundnum fótbolta. Menn þjálfa sig í tækni, fótavinnu og liðssamvinnu í þessu. Ég er ekki í vafa um að þessi tegund af fótbolta hjálpar mönnum bara að verða betri."

Hann er virkilega ánægður með hvernig tókst til með nýlokið Íslandsmót. „Það eru komin geysilega sterk lið eins og til dæmis þessi lið sem eru að spila til úrslita. Einnig er til fyrirmyndar hvernig þjálfararnir hafa sinnt þessu," segir Willum.

Undirbúningur landsliðsins fer af stað með æfingum milli jóla og nýárs. „Ég reikna með að það verði 16-20 manna hópur svo vinnum við með hann inn í mótið. Á skýrslu mega svo vera tólf."

Willum segir að meðal þeirra sem verði í hópnum verði nokkrir gamlir jaxlar. „Þessar þjóðir sem við erum að fara að mæta í janúar eru komnar skrefi á undan okkur, byrjuðu að stunda þetta fyrr. En þetta er mjög spennandi verkefni og erfitt að meta möguleika okkar. Við fórum inn í riðilinn í lægsta styrkleikaflokknum."

„Ég held að þessi lið séu álík að getu. Ég hef séð einhver myndbrot en það er erfitt að gera sér grein fyrir hvar við stöndum. Við eigum samt nokkra gríðarlega sterka leikmenn. Við þurfum að nýta tímann vel fram að móti og tileinka okkur taktík og nálgunina í leiknum, það er kannski helst það sem við þurfum að fara yfir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×