Innlent

Steingrímur fundar með erlendum ráðamönnum

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, heldur af landi brott í kvöld eða á morgun til fundar við erlenda ráðamenn. Ríkisstjórnin ætlar að sitja áfram þrátt fyrir synjun forseta en til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave málinu undir lok næsta mánaðar.

Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar nú síðdegis til fjalla meðal annars um frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave.

Til stendur að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 20. febrúar vonast er til þess að Alþingi afgreiði frumvarpið á föstudag.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa haft í nógu að snúast í dag til slökkva þá elda sem hafa kviknað í kjölfar þeirrar ákvörðunar Forseta Íslands að skrifa ekki undir Icesave lögin.

Össur Skarphéðinsson vildi þó lítið tjá sig um stöðu mála að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. „Ég ætla að tala við marga í kvöld og er búinn að tala við marga í dag," sagði Össur aðspurður hvort hann ætli að tala við Milliband utanríkisráðherra Bretlands í kvöld.

Fjármálaráðherra segir að stjórnarflokkarnir séu ákveðnir í því að halda stjórnarsamstarfinu áfram.

„Ég heyri ekkert annað en að menn séu það og ekki yrði á það bætandi held ég ef hér yrði pólitísk upplausn ofan í hitt," sagði Steingrímur.

Fjármálaráðherra talaði í dag við starfsbræður sína í Bretlandi, Hollandi og á Norðurlöndum. Mörg mikilvæg verkefni séu þó framundan. Eitt standi þó upp úr.

„Það er augljóst hvað það er núna. Það er að verja landið eins og hægt er. Draga úr neikvæðum áhrifum af atburðum gærdagsins og halda virkum stjórnmálatengslum á milli Íslands og gagnaðilanna og nágrannalandanna ," sagði fjármálaráðherra.

Steingrímur ætlar að fara af landi brott til að funda með erlendum ráðamönnum. „Það gæti skýrst í kvöld hvað mig varðar hvernig mínum næstu dögum verður háttað. Það er verið að vinna þetta mjög hratt og ég get ekki alveg svarið fyrir það hvort ég fer úr landi í fyrramálið eða föstudaginn. það er mjög líklegt að ég fari til einhverja funda á næstu sólarhringum," sagði Steingrímur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×