7 tímar í fyrsta leik: Vandræði Valsmanna á Vodafone-vellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2010 12:00 Baldur Aðalsteinsson í síðasta sigurleik Valsmanna á Vodafone-vellinum sem var 6. júlí 2009. Mynd/Arnþór
Valur og FH leika í kvöld opnunarleikinn í Pepsi-deild karla þegar Íslandsmeistarar síðustu sex tímabila mætast á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Valsmenn leika í kvöld fyrsta leikinn undir stjórn þjálfarans Gunnlaugs Jónssonar og það verður fróðlegt að sjá hvort að liðinu gengi betur á heimavelli sínum en það gerði í tíð Atla Eðvaldssonar í brúnni. Það verður einnig athyglisvert að sjá hvort að Gunnlaugi takist að breyta þróun síðustu ára og vinna fyrsta leik í mótinu en Valsmenn hafa ekki unnið opnunarleik sinn síðan 2005 sem var þá einmitt fyrsti deildarleikur liðsins undir stjórn Willums Þórs Þórssonar. Valsmenn unnu ekki heimaleik í Pepsi-deildinni undir stjórn Atla Eðvaldssonar í fyrrasumar en eini heimasigurinn var 3-2 sigur á KA í framlengdum bikarleik 6. júlí í fyrra. 7 af 9 stigum liðsins undir stjórn Atla komu á útivelli. Valsmenn fengu aðeins tvö stig út úr síðustu sjö heimaleikjum sínum á síðasta tímabilið og slæma gengið á Hlíðarenda hófst einmitt með 0-5 stórtapi á móti FH 2. júlí. Einu stig Valsmanna á Vodafone-vellinum eftir það voru jafntefli á móti Stjörnunni (3-3) og Keflavík (2-2). Valsmenn hafa tapað fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu undanfarin tvö ár og þrívegis á síðustu fjórum árum. Liðið gerði hinsvegar 1-1 jafntefli í eina heimaleik sínum í fyrstu umferð á þessum tíma en sá leikur var reyndar spilaður á Laugardalsvellinum og á móti Fram sem spilar heimaleiki sína þar. Valsmenn hafa reyndar unnið fyrsta leik sinn á Vodafone-vellinum undafarin tvö sumar og hafa í bæði skiptin lagt Fjölnismenn að velli. Valsmenn unnu Fjölnismenn 2-1 í opnunarleik vallarins 2008 og unnu síðan 3-1 sigur á Fjölni í fyrsta heimaleiknum sínum þar í fyrra.Síðustu sjö heimaleikir Vals í fyrra: 26.september Valur-KR 2-5 tap 13.september Valur-Stjarnan 3-3 jafntefli 22. ágúst Valur-Breiðablik 0-3 tap 9. ágúst Valur-Fram 1-2 tap 27. júlí Valur-Keflavík 2-2 jafntefli 20. júlí Valur-Fylkir 0-1 tap 2. júlí Valur-FH 0-5 tapFyrsti leikur Valsmanna á Íslandsmótinu síðustu ár: 2009 10. maí Fylkisvöllur Fylkir-Valur 1-0 2008 10. maí Keflavíkurvöllur Keflavík-Valur 5-3 2007 13. maí Laugardalsvöllur Valur-Fram 1-1 2006 15. maí Kópavogsvöllur Breiðablik-Valur 2-1 2005 16. maí Hlíðarendi Valur-Grindavík 3-1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Golf Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Fleiri fréttir Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Sjá meira