Alþingi á aðeins einn kost 4. júlí 2009 06:00 „Gleymum því aldrei að mistök stjórnmálamanna eru núna að lenda á okkur – þjóðinni.“ </I>Gylfi Arnbjörnsson „
Það verður að klára þetta. Öðruvísi komumst við ekki í samband við erlenda fjármagnsmarkaði sem endurreisnin byggir á," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann færir, ásamt öðrum forsvarsmönnum atvinnulífsins og verkalýðsforystunnar, sömu rök og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fyrir samþykkt frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna. Steingrímur sagði við fyrstu umræðu frumvarpsins á miðvikudag að yrði frumvarpið fellt myndi allt annað stranda á því. „Þá kemur október aftur," sagði Steingrímur. Áfram var tekist á um Icesave-samningana á Alþingi í gær, annan daginn í röð. Að því loknu var frumvarpinu vísað til fjárlaganefndar, sem kom saman síðdegis til að fara yfir hvaða gesti nefndin skyldi fá á sinn fund vegna málsins og hverjum málið skyldi sent til umsagnar. Búist er við því að fyrstu gestirnir komi fyrir nefndina á mánudag. Fjárlaganefnd mun hafa yfirumsjón með vinnunni við frumvarpið en ákveðnum hlutum þess mun verða vísað til efnahags- og skattanefndar og utanríkismálanefndar. Áætlað er að það þurfi rúma viku í nefndum áður en það verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi. Vilhjálmur segir lyktir málsins alltaf hafa verið skilyrði fyrir aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og annarra þjóða að lánveitingum. „Ég tel ekki að með því að hafna samningnum sé hægt að fá annan betri í framtíðinni." Vilhjálmur segir að innstreymi erlends fjármagns sé lykilatriði til að koma atvinnulífinu í gang og öll uppbygging næstu ára hvíli á því. „Án aðgangs að slíku lánsfé búum við til kreppu sem mun standa yfir svo árum skiptir." „Gleymum því aldrei að mistök stjórnmálamanna eru núna að lenda á okkur - þjóðinni," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins. Hann segir að í því ljósi sé holur hljómur í málflutningi stjórnarandstöðunnar þessa dagana. „Mér sýnist, í þeirri stöðu sem við erum í, að samningarnir geri okkur betur kleift en á horfðist að leysa úr þessu erfiða máli. Staðan er sú að ef þjóðin ætlar í þessa deilu með því að fella þessa samninga og setja allt málið í uppnám aftur er verið að taka áhættu sem ekki er þess virði að taka." Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, segir málið í heild sinni skelfilegt fyrir Íslendinga. Hann er ósáttur við hvernig að samningunum var staðið og hefði kosið að færustu sérfræðingar hefðu verið valdir til viðræðnanna við Breta og Hollendinga í stað þess að láta fyrrverandi stjórnmálamann leiða samninganefnd Íslands á móti þaulvönum sérfræðingum mótaðilanna. „Ég hefði að sjálfsögðu viljað sjá mun sanngjarnari vexti eins og margir hafa bent á. En nú liggur þessi samningur svona á borðinu og það þarf að taka afstöðu. Ég öfunda alþingismenn ekki af því að þurfa að leiða þetta erfiða mál til lykta en ég er þeirrar skoðunar að við eigum engan annan kost en að samþykkja samninginn og ljúka málinu. Íslendingar standa við skuldbindingar sínar og ég óttast afleiðingar þess ef Alþingi fellir samninginn. Þá tæki við enn meiri óvissa í íslensku efnahagslífi en nú er. Nóg er nú samt." Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að stjórn samtakanna hafi ekki ályktað formlega um málið en það hafi verið rætt. „Ég heyri ekki betur en að allir stjórnarmenn okkar séu þeirrar skoðunar að við eigum um ekkert annað að velja en að samþykkja þennan samning, eins dapurt og það nú er."
Mest lesið „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Innlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Innlent Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Innlent Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent