Innlent

Greiðslubyrði fólks lykilatriði - útilokar ekki niðurfellingu skulda

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG. Mynd/Pjetur
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir eignafjárstöðu fólks ekki vera lykilatriði heldur greiðslubyrði þeirra. Hana verði fyrst og fremst að horfa á þegar kemur að vanda heimilanna. Steingrímur taldi ekki ólíklegt að fólk koma saman í ríkara mæli á Austurvelli og mótmæla ástandinu.

Þetta kom fram í viðtali Heimis Más Pétursson við ráðherrann í þættinum Ísland í dag í kvöld.

Steingrímur sagði að greiðsluaðlögunarferli feli það í sér að staða fólks verði skoðuð eftir ákveðin árafjölda. Jafnvel þrjú ár. Hann útilokar ekki að hluti skulda fólks verði þá felldar niður.

„Það getur vel veri að að verði órógleiki og það er lítið við því að gera," segir ráðherrann aðspurður hvort hann telji að fólk muni mæta í auknum mæli á Austurvell líkt og í byrjun ársins til að mótmæla ástandinu. Steingrímur sagði ríkisstjórnina ekki skorta vilja til að aðstoða almenning í landinu.

Hægt er að horfa á viðtalið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×