Farið fram á fjögurra vikna varðhald yfir byssumanninum 20. nóvember 2009 12:25
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir byssumanninum sem hleypti fimm haglabyssuskotum á útidyrahurð íbúðahúss í Seljahverfi um síðustu helgi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þetta gert á grundvelli almannahagsmuna. Núverandi gæsluvarðhald rennur út í dag. Líkt og fram hefur komið í fréttum var bankað upp á hús í Seljahverfi aðfaranótt sunnudags. Þegar íbúinn kom til dyra stóð þar maður vopnaður haglabyssu sem sló til hans með byssuskaftinu. Íbúinn náði að loka útidyrahurðinni en þá hleypti maðurinn fimm haglabyssuskotum af, en skotin höfnuðu í hurðinni auk þess sem gluggi í forstofu brotnaði. Með byssumanninum var kærasta hans, sem er fyrrverandi starfsmaður íbúans. Hann hafði skömmu áður sagt henni upp störfum í bakarí þar sem hann er yfirmaður.
Tengdar fréttir Par til yfirheyrslu vegna skotárásar Rannsóknarlögreglumenn eru með ungt par til yfirheyrslu vegna skotárásarinnar í Þverárseli aðfararnótt sunnudagsins. Að sögn Friðriks Smára er parið íslenskt og er karlmaðurinn á þrítugsaldri. 16. nóvember 2009 10:12 Byssumanninum hugsanlega sleppt í dag Gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti fimm haglabyssuskotum á útidyrahurð íbúðahúss í Seljahverfi um síðustu helgi rennur út í dag. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort að óskað verði eftir því að maðurinn verði áfram í varðhaldi, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ákvörðun um það verður tekin síðar í dag. 20. nóvember 2009 10:00 Nágranninn mætti með haglabyssu Íbúi í kjallara mannsins sem varð fyrir árás byssumanns aðfaranótt sunnudags, mætti sjálfur á vettvang með haglabyssu þegar hann varð var við lætin á efri hæðinni. Árásarmaðurinn var þá á bak og burt. 18. nóvember 2009 13:53 Parið væntanlega vistað í fangaklefum á Hverfisgötu Ekki er pláss fyrir unga parið sem grunað erum að hafa skotið á hús í Seljahverfi um helgina í íslenskum fangelsum. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fólkinu í dag og verði héraðsdómur við beiðni lögreglu verður fólkið að öllum líkindum vistað í fangaklefum lögreglunnar á Hverfisgötu, að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra. 16. nóvember 2009 17:56 Parið var í hefndarleiðangri - stúlkunni sleppt Karl sem gekk berserksgang með haglabyssu í Breiðholti um helgina var úrskurðaður í gæsluvarðhald síðdegis. Vinkonu hans var vikið úr starfi, og vildi hann hefna sín á fyrrverandi vinnuveitanda hennar. 16. nóvember 2009 18:36 Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Sjá meira
Par til yfirheyrslu vegna skotárásar Rannsóknarlögreglumenn eru með ungt par til yfirheyrslu vegna skotárásarinnar í Þverárseli aðfararnótt sunnudagsins. Að sögn Friðriks Smára er parið íslenskt og er karlmaðurinn á þrítugsaldri. 16. nóvember 2009 10:12
Byssumanninum hugsanlega sleppt í dag Gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti fimm haglabyssuskotum á útidyrahurð íbúðahúss í Seljahverfi um síðustu helgi rennur út í dag. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort að óskað verði eftir því að maðurinn verði áfram í varðhaldi, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ákvörðun um það verður tekin síðar í dag. 20. nóvember 2009 10:00
Nágranninn mætti með haglabyssu Íbúi í kjallara mannsins sem varð fyrir árás byssumanns aðfaranótt sunnudags, mætti sjálfur á vettvang með haglabyssu þegar hann varð var við lætin á efri hæðinni. Árásarmaðurinn var þá á bak og burt. 18. nóvember 2009 13:53
Parið væntanlega vistað í fangaklefum á Hverfisgötu Ekki er pláss fyrir unga parið sem grunað erum að hafa skotið á hús í Seljahverfi um helgina í íslenskum fangelsum. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fólkinu í dag og verði héraðsdómur við beiðni lögreglu verður fólkið að öllum líkindum vistað í fangaklefum lögreglunnar á Hverfisgötu, að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra. 16. nóvember 2009 17:56
Parið var í hefndarleiðangri - stúlkunni sleppt Karl sem gekk berserksgang með haglabyssu í Breiðholti um helgina var úrskurðaður í gæsluvarðhald síðdegis. Vinkonu hans var vikið úr starfi, og vildi hann hefna sín á fyrrverandi vinnuveitanda hennar. 16. nóvember 2009 18:36