Lífið

Glaðbeittur sveitarstjóri fær vínbúð á neðri hæðina

Lúga inn í vínbúðina. Ísólfur Gylfi Pálmason fær góða nágranna þegar Vínbúð verður opnuð á hæðinni fyrir neðan hann á Flúðum. Ísólfur segir gárungana í hreppnum nú velta því fyrir sér hvort sérstök lúga verði fyrir sveitarstjórann inn í Vínbúðina.
Fréttablaðið/Jón Sigurður
Lúga inn í vínbúðina. Ísólfur Gylfi Pálmason fær góða nágranna þegar Vínbúð verður opnuð á hæðinni fyrir neðan hann á Flúðum. Ísólfur segir gárungana í hreppnum nú velta því fyrir sér hvort sérstök lúga verði fyrir sveitarstjórann inn í Vínbúðina. Fréttablaðið/Jón Sigurður

„Þetta er nú bara gott dæmi um hvað landsbyggðin getur boðið upp á góða þjónustu við sitt fólk,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. Ísólfur, sem er annálaður stuðpinni og gleðimaður, fær að líkindum góða ástæðu til að brosa breitt í vor því nú bendir allt til þess að hreppstjórinn fái góða granna þegar ÁTVR opnar vínbúð í gamla bankahúsinu á Flúðum við Akurgerði 4. Svo skemmtilega vill til að á efri hæð hússins er íbúð þar sem sveitarstjóri býr alla jafnan.

Ísólfur var staddur á ráðstefnu í Árnesþingi um menningartengda ferðaþjónustu og heimsækja landnámsbæinn Stöng þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann var brattur að vanda, sagði sveit­unga sína hressa enda engin ástæða til annars. Vínbúð á Flúðum verður eflaust mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna þar um slóðir enda er fjöldi sumarbústaða þar í grennd og staðurinn vinsæll áningastaður hjá ferðamönnum yfir sumarið.

Ísólfur sagði þetta þó allt óstaðfest enn sem komið væri, meiri líkur en minni væru þó á að þetta gengi eftir. Hann upplýsti jafnframt að gárungarnir í hreppnum veltu því nú mikið fyrir sér hvort hönnun vínbúðarinnar yrði þannig úr garði gerð að sérstök lúga yrði fyrir sveitarstjórann inn í vínbúðina þannig að hann gæti auðveldlega teygt sig í góð vín þegar góða gesti bæri að garði eða þannig lægi á honum.

Ísólfur gat enda ekki annað en viðurkennt að þetta gæti orðið töluverður munaður. „Allavega verður tiltölulega stutt fyrir mann að fara ef það vantar rauðvín með matnum.“freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.