Glaðbeittur sveitarstjóri fær vínbúð á neðri hæðina 13. mars 2009 07:30 Lúga inn í vínbúðina. Ísólfur Gylfi Pálmason fær góða nágranna þegar Vínbúð verður opnuð á hæðinni fyrir neðan hann á Flúðum. Ísólfur segir gárungana í hreppnum nú velta því fyrir sér hvort sérstök lúga verði fyrir sveitarstjórann inn í Vínbúðina. Fréttablaðið/Jón Sigurður „
Þetta er nú bara gott dæmi um hvað landsbyggðin getur boðið upp á góða þjónustu við sitt fólk,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. Ísólfur, sem er annálaður stuðpinni og gleðimaður, fær að líkindum góða ástæðu til að brosa breitt í vor því nú bendir allt til þess að hreppstjórinn fái góða granna þegar ÁTVR opnar vínbúð í gamla bankahúsinu á Flúðum við Akurgerði 4. Svo skemmtilega vill til að á efri hæð hússins er íbúð þar sem sveitarstjóri býr alla jafnan. Ísólfur var staddur á ráðstefnu í Árnesþingi um menningartengda ferðaþjónustu og heimsækja landnámsbæinn Stöng þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann var brattur að vanda, sagði sveitunga sína hressa enda engin ástæða til annars. Vínbúð á Flúðum verður eflaust mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna þar um slóðir enda er fjöldi sumarbústaða þar í grennd og staðurinn vinsæll áningastaður hjá ferðamönnum yfir sumarið. Ísólfur sagði þetta þó allt óstaðfest enn sem komið væri, meiri líkur en minni væru þó á að þetta gengi eftir. Hann upplýsti jafnframt að gárungarnir í hreppnum veltu því nú mikið fyrir sér hvort hönnun vínbúðarinnar yrði þannig úr garði gerð að sérstök lúga yrði fyrir sveitarstjórann inn í vínbúðina þannig að hann gæti auðveldlega teygt sig í góð vín þegar góða gesti bæri að garði eða þannig lægi á honum. Ísólfur gat enda ekki annað en viðurkennt að þetta gæti orðið töluverður munaður. „Allavega verður tiltölulega stutt fyrir mann að fara ef það vantar rauðvín með matnum.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira