Innlent

Stórhættulegt svæði

Björgun Mesta mildi þykir að fimmtán ára drengur hafi sloppið með lítil sem engin meiðsl, eftir að hafa hrapað tólf metra ofan í jökulsprungu.
Myndir/Þórður Guðnason
Björgun Mesta mildi þykir að fimmtán ára drengur hafi sloppið með lítil sem engin meiðsl, eftir að hafa hrapað tólf metra ofan í jökulsprungu. Myndir/Þórður Guðnason

„Þetta er ekki þannig svæði að mönnum ætti að detta í hug að fara um það á snjósleða. Það er stórhættulegt. Drengurinn fer niður í hallann, þar sem allt er krosssprungið yfir sumar­tímann. En þetta skrifast bara á ókunnugleika,“ segir Snorri H. Jóhannesson í Björgunarsveitinni Ok í Borgarnesi. Hann var einn af tugum björgunarsveitarmanna sem kallaðir voru út á Geitlandsjökul, vestasta hluta Langjökuls, á laugardag. Þar hafði fimmtán ára drengur fallið um fimmtán metra ofan í jökulsprungu. Hann lenti á syllu niðri í sprungunni og náði að halda sér á henni í um tvær klukkustundir, eða þangað til björgunarsveitarmenn hífðu hann upp.

Svo virðist sem drengurinn hafi lent í hliðarhalla, átt erfitt með að snúa aftur upp og því smáþokast niður eftir jöklinum. Hann hafi stöðvað sleðann og ætlað að ganga til baka en þá dottið ofan í sprunguna. Þeir sem voru með honum komu svo að sleðanum mannlausum. Þeir brugðust hárrétt við, að mati Snorra, og gerðu björgunarsveitum strax viðvart. Stuttu síðar höfðu þeir komist að því hvar hann fór niður og höfðu náð sambandi við hann.

Talið er að að minnsta kosti tvö hundruð manns hafi verið uppi á Langjökli á laugardag, í ýmiss konar útivist. Fyrstu fréttir af slysinu sögðu ekki annað en að sleðamaður hefði farið ofan í sprungu á Langjökli. Við það urðu allar línur rauðglóandi hjá björgunarsveitum og Landhelgisgæslunni, og ljóst að fjöldi manns óttaðist um aðstandendur sína, áður en frekari fréttir bárust af slysinu. „Þessi jökull er orðinn að þvílíku leiksvæði að það er undravert hvað verður í raun lítið um óhöpp á honum,“ segir Snorri.

Björgunin þótti takast vonum framar vel. Sigurður Axel Axelsson, undanfari í Björgunarfélagi Akraness, var einn þeirra fyrstu á svæðið.

Hann beið við brún sprungunnar á meðan félagi hans seig niður til drengsins. „Það gekk mjög vel að koma honum á börur og hífa hann upp. Stuttu seinna var hann kominn í þyrluna, svo þetta gekk mjög vel í alla staði. Það var sumarveður, svo þetta var björgun við bestu aðstæður.“

Hann segir ótrúlega mildi að ekki hafi farið illa. „Þetta var pínulítil sylla sem hann lenti á. Ef hann hefði farið ofan í sprunguna annars staðar hefði hann sennilega hrapað tíu til fimmtán metra í viðbót. Þetta var eiginlega eins og í einhverri ævintýrabók. Hann er mjög heppinn.“

Drengurinn var orðinn kaldur niðri í sprungunni en kenndi sér að öðru leyti lítils meins. Hann var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur og liggur nú inni á Barnaspítala Hringsins, þaðan sem hann mun útskrifast á næstu dögum.

holmfridur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×