Erlent

Örfáir myndu framselja hann

Ratko Mladic. Eftirlýstur fyrir stríðsglæpi síðan 1995.
Ratko Mladic. Eftirlýstur fyrir stríðsglæpi síðan 1995. fréttablaðið/AP

Ratko Mladic nýtur enn mikilla vinsælda og stuðnings í Serbíu, þrátt fyrir að hafa verið eftirlýstur stríðsglæpamaður í meira en áratug.

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun myndu nærri tveir af hverjum þremur Serbum alls ekki veita stjórnvöldum upplýsingar, sem leiddu til handtöku hans, jafnvel þótt ein milljón evra sé í boði sem lausnargjald.

Einungis 14 prósent sögðust hiklaust veita slíkar upplýsingar, en aðrir sögðust ekki vissir um hvað þeir myndu gera ef þeir byggju yfir slíkri vitneskju.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×