Erlent

Snýr sér að efnahagsmálum

Barack Obama hvatti þingið til að fallast á efnahagsráðstafanir sínar.
Barack Obama hvatti þingið til að fallast á efnahagsráðstafanir sínar. fréttablaðið/AP

Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fundi með þingmönnum beggja flokka og hvatti þá til að styðja efnahagsaðgerðir sínar. Ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar krefjist þess að þingið taki til sinna ráða, jafnvel þótt sumum þingmönnum hugnist ekki sumir hlutar aðgerðanna.

„Ég átta mig á að enn er einhver ágreiningur,“ sagði hann, en flokksbræður hans í Demókrataflokknum hafa gefið honum fyrirheit um að hann geti undirritað lögin um miðjan febrúar.

Obama hefur haft í nógu að snúast síðan hann tók við embætti á þriðjudag. Efnahagsmálin eru stærsta áhyggjuefni Bandaríkjamanna um þessar mundir, en áður en hann sneri sér að þeim málum í gær hafði hann kynnt nokkrar af ráðstöfunum sínum í utanríkismálum, svo sem að fangabúðunum illræmdu við Guantánamo á Kúbu yrði lokað innan árs.

Á fimmtudag skipaði Obama einnig tvo gamalreynda samningamenn sendifulltrúa sína í Austurlöndum nær og fjær. Richard Holbrooke, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, fær það hlutverk að samhæfa stefnu Bandaríkjanna gagnvart Afganistan og Pakistan, en George J. Mitchell, fyrrverandi leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjanna, verður fulltrúi Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×