Innlent

Tvær árgerðir bíla koma ekki á göturnar

Sigríður Mogensen skrifar
Markaðsstjóri Ingvars Helgasonar og B&L segir að bílar af árgerðinni 2009 og 2010 komi líklega ekki á göturnar á Íslandi. Umboðin eru nú með lagersölu á nýjum bílum.

Bílaumboðin ákváðu að lækka verð á eftirársbílum umtalsvert. Um er að ræða Subaru, Nissan, Hyundai, Land Rover bíla og fleiri tegundir. Loftur Ágústsson, markaðsstjóri Bílaumboðanna, segir viðbrögðin hafa verið mjög góð.

„Við auðvitað vonuðumst til að fá einhver viðbrögð en gerðum okkur ekki grein fyrir að þau yrðu svona sterk," segir Loftur.

Bílasala hefur orðið hvað verst úti í kreppunni. Loftur segir að bílar af árgerðunum 2009 og 2010 verði væntanlega ekki sjáanlegir hér á landi.

„Þetta ástand sem skapaðist eftir páska í fyrra gerði það að verkum að umboð drógu flest úr pöntunum og þó það sé erfitt að fullyrða yfir heildina geri ég ráð fyrir að flest umboð hafi dregið eða jafnvel hætt pöntunum þá. Á þessu ári erum við því að selja restar frá síðasta ári og síðan á þessu ári verða mjög fáir bílar seldir og ef að líkum lætur, ef verð á evru verður eins og það er í dag, verða líka lítið af bílum seldir á næsta ári," segir Loftur.

„Það þýðir raunverulega að það detta út tvær árgerðir í sölu, að minnsta kosti," segir Loftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×