Mamma Mia! í 29 þúsund eintökum 5. janúar 2009 03:00 Söngvamyndin vinsæla hefur slegið öll met hér á landi sem og annars staðar.
DVD-útgáfa söngvamyndarinnar Mamma Mia! seldist í 29 þúsund eintökum fyrir jólin. Þar með er hún orðin söluhæsta DVD-myndin frá upphafi á Íslandi. „Við bjuggumst við 25 til 30 þúsundum og þetta er alveg á því róli. Þetta er bara frábært og stendur fyllilega undir væntingum,“ segir Halldór Sigurbjörn Guðjónsson, sölustjóri Myndforms. „Það koma tvö þúsund stykki núna rétt eftir áramót því hún er uppseld eins og er.“ Næstvinsælasta DVD-útgáfan var Laddi 6-Tugur sem seldist í um 23 þúsund eintökum. „Við tókum fimmtán þúsund í upphafi og héldum að við værum að skjóta aðeins yfir markið. En þetta er titill sem selst allt árið um kring og hann er svo ofboðslega vinsæll hann Laddi,“ segir Konstantin Mikaelsson, yfirmaður kvikmyndadeildar Senu, „Svo var salan það gríðarlega mikil að við bættum við tíu þúsundum.“ Þriðja vinsælasta myndin var The Dark Knight sem seldist í um sextán þúsund eintökum. „Hún seldist þrisvar upp hjá okkur og við þurftum að panta hana aftur og aftur. Við vissum að hún yrði stór en ekki svona stór,“ segir Ómar Friðleifsson hjá Sam-myndum. Númer fjögur var Brúðguminn sem seldist í um þrettán þúsund eintökum og teiknimyndin Kung Fu Panda í fimmta sæti með tólf þúsund. Loks seldist Dagvaktin í um tíu þúsund eintökum, sem er mun minna en Næturvaktin seldist fyrir síðustu jól, sem voru sextán þúsund eintök. „Það var auðvitað mikið nýjabrum í kringum Næturvaktina. Þegar önnur sería kemur er alltaf minni spenningur. Auðvitað hefðum við viljað selja meira en þetta var ekkert langt frá okkar væntingum,“ segir Konstantin - fb
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira