Þjóðin sögð ráða við ábyrgðina á Icesave 1. júlí 2009 06:00
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að það hvarfli ekki að henni að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins verði fellt á Alþingi. Á blaðamannafundi forsætisráðherra með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra og Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra í gær var kynnt að trúnaði væri aflétt af 68 skjölum sem tengjast Icesave-málinu og að þingmenn fái aðgang að 24 öðrum skjölum. Jóhanna sagði ríkisstjórninni hafa verið nauðugur einn kostur að semja um Icesave. Steingrímur sagðist hafa miklar áhyggjur af stöðunni ef Alþingi felldi samninginn. „Það er ekki einu sinni víst að menn myndu byrja á byrjunarreit," sagði hann. Viðskiptaráðherra sagði fráleitt að halda því fram að þjóðin réði ekki við skuldbindingar sínar vegna Icesave-ábyrgðarinnar. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar sögðust í gær ekki hafa skipt um skoðun á málinu þrátt fyrir birtingu trúnaðargagnanna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, kvað frumvarpið tilraun ríkisstjórnarinnar til að réttlæta samning sem hún hafi komist að niðurstöðu um og um leið tilraun til að varpa frá sér ábyrgð. Á því hefði verið haldið eins og venjulegum lánssamningi en ekki milliríkjadeilu. Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar, sagðist hafa styrkst í andstöðu sinni við samninginn. Farsælast fyrir þjóðina væri að semja að nýju. „Það er algjörlega ótækt og stórhættulegt að ríkið taki á sig þessar skuldbindingar," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Frumvarpið var kynnt í þingflokkum stjórnarflokkanna um helgina og tók þar nokkrum breytingum áður en það fór fyrir ríkisstjórn á mánudag. Nefna má auknar skýringar á endurskoðunarákvæðum, betrumbót á skuldaþoli og skýringar á eftirlitshlutverki Fjármálaeftirlits og Seðlabanka í aðdraganda hruns. Frumvarpið verður rætt á þingi á morgun. Einhver andstaða er enn fyrir hendi innan vinstri grænna, en heimildir blaðsins herma að æ fleiri þingmenn sjái samninginn sem einu færu leiðina.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira