Tóku út helmingi hærri arð en skuldin sem þeir vilja fá fellda niður Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 9. júlí 2009 18:30
Björgólfsfeðgar tóku helmingi hærri arð út á hlutabréf sín í Landsbankanum en sem nemur skuldinni sem þeir vilja nú fá fellda niður. Skuldin er tilkomin vegna kaupa þeirra á hlutabréfunum í bankanum. Samson, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga og þá Magnúsar Þorsteinssonar, keypti 45,8 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum í árslok 2002. Kaupverðið var þá 11,2 milljarðar króna. Krafa Kaupþings á hendur þeim feðgum er tilkomin vegna þessara kaupa. Upphaflega hljóðaði lánið upp á 4,9 milljarða króna en stendur í dag í tæpum 6 milljörðum með dráttarvöxtum og öðrum áföllnum kostnaði. Feðgarnir gerðu Kaupþingi tilboð um að greiða um fimmtíu prósent af skuldinni, eða þrjá milljarða, en þeir eru í persónulegri ábyrgð fyrir láninu. Sé litið á arðgreiðslur sem hluthafar Landsbankans fengu þann tíma sem Björgólfsfeðgar voru stærstu hluthafar bankans má sjá að alls voru tæpir 10 milljarðar greiddir í arð. Arðgreiðslurnar fóru frá því að vera um 10% af hagnaði og upp í um 13%. Enginn arður var þó greiddur út 2007 en þá var öllum hagnaði ráðstafað til hækkunar á eigin fé bankans. Á þessum tíma sveiflaðist eignarhald feðganna á bankanum frá um 41% og upp í 55% en var að meðaltali í kringum 45%. Af því gefnu má sjá að Samson, eignarhaldsfélag þeirra feðga, fékk um fjóran og hálfan milljarð í arðgreiðslur á þessu tímabili. Sú upphæð er helmingi hærri en sem nemur skuldinni sem þeir vilja nú fá fellda niður. Auk þess sem hún er næstum jafn há og upphaflega skuldin.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira