Kosið í skugga hótana 20. ágúst 2009 09:47 MYND/AP
Forsetakosningar standa nú yfir í Afganistan en þær fara fram í skugga hótana Talíbana um að gera árásir á kjörstaði. Kjörstaðir hafa opnað í þessu stríðshrjáða landi en aðstæður í Afganistan til frjálsra kosninga eru heldur lakar. Gífurleg öryggisgæsla er við kjörstaði og um 300 þúsund hermenn frá vesturlöndum og afganistan hafa það verkefni að halda friðinn á þeim 6000 kjörstöðum sem opnaðir hafa verið. Talíbanar hafa hins vegar ítrekað hótað árásum á kjörstaði og nú þegar hafa borist fregnir af eldflaugaárásum í brogunum Kandahar og Kunduz. Talíbanar segjast hafa sent útsendara sína út á meðal fólksins og hafa þeir boðað að minnsta kosti tuttugu sjálfsmorðsárásir í höfuðborginni Kabúl í dag. Síðustu daga hafa um 25 manns látist í sprengjuárásum Talíbana víðsvegar landið. Í morgun voru tveir Talíbanar felldir í Kabúl eftir að til skotbardaga kom á milli þeirra og hersins. Um 15 til 17 milljónir manna hafa skráð sig til þáttöku í kosningunum en Afganir eru um 33 milljónir. Fastlega er búist við því að sitjandi forseti Hamid Karzai fari með sigur af hólmi í kosningunum en fyrrverandi utanríkisráðherra landsins Abdullah Abdullah gæti ógnað honum að einhverju marki.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Sjá meira